drengskaparheit undirritað.
Stjórnskipunar- og eftirlitsnefnd mælir einróma með staðfestingu kosningar Svanbergs og Guðnýjar Birnu og telst það samþykkt án atkvæðagreiðslu ef enginn hreyfir andmælum.
Svanberg og Guðný Birna hafa ekki áður tekið sæti á Alþingi og ber því að undirrita drengskaparheit að stjórnarskránni.
Fyrst vil ég biðja Svanberg Hreinsson um að rita undir heitstafinn og því næst Guðnýju Birnu Guðmundsdóttur.
[Svanberg Hreinsson, 7. þm. Reykv. s., og Guðný Birna Guðmundsdóttir, 8. þm. Suðurk., undirrituðu drengskaparheit að stjórnarskránni.]