almennar stjórnmálaumræður.
Virðulegur forseti. Góðir landsmenn. Það er vor og þá fyllumst við bjartsýni um framtíðina. Stúdentskollarnir fara á loft, yngstu börnin færast upp í grunnskóla, sumarleyfin á næsta leiti og síðast en ekki síst er leyfilegt að hittast, faðmast og hafa gaman. Já, við erum að læra upp á nýtt að hittast fyrir utan kúlurnar okkar. Og mikið er það skemmtilegt að finna hvert fyrir öðru því að þrátt fyrir allt er litróf mannlífsins svo dásamlega skemmtilegt. Við sem störfum á vettvangi stjórnmálanna megum aldrei missa sjónar á einmitt þessu, litrófi mannlífsins og tilgangi starfa okkar við að rækta þann jarðveg sem mannlífið vex upp úr. Það er talað um að hafa græna fingur þegar rækta á plöntur, en ég er ekki frá því að það séu rauðu fingurnir sem henti best þegar rækta á gróskufullt mannlífið því að þeir taka lit sinn frá hjartanu. Þar finna þeir umhyggju og samkennd. Það þarf að hafa hjarta í stjórnmálum, virkt og opið hjarta til að gera það besta mögulega fyrir íbúa þessa lands og jarðarinnar allrar. Og þrátt fyrir átökin sem birtast almenningi héðan úr þingsal þá bera störf okkar í sameiningu oft árangur. Þá er gott að það var til einhvers að vinna hérna langt fram eftir kvöldum við að reyna að leysa úr verkefnum líðandi stundar.
Í upphafi síðasta kjörtímabils var kjörorðið innviðir. Því miður stöndum við enn frammi fyrir því að margir eru þeir orðnir býsna laskaðir. Heilbrigðiskerfið er hjartað sem verður að fá næringu. Hæstv. fjármálaráðherra, sem gegnt hefur því embætti nánast án hlés frá árinu 2013, ber mikla ábyrgð á því hvernig fjármunum skattgreiðenda hefur verið ráðstafað á þeim tæpu tíu árum og hverjir það eru sem bera þyngstu byrðarnar. Það eru ekki bara við í Samfylkingunni sem höfum bent á vanfjármögnun heilbrigðiskerfisins heldur sést það svart á hvítu í fjölda skýrslna, samanburðarskýrslu OECD-ríkja, skýrslu McKinseys eða skýrslum Ríkisendurskoðunar um geðheilbrigðismál, um hjúkrunarheimili eða fleira. Heilbrigðiskerfið okkar er vanfjármagnað og hefur verið það lengi og nú erum við að missa okkar besta starfsfólk út úr heilbrigðiskerfinu á sama tíma og viðvarandi mönnunarvandi er í heilbrigðiskerfinu. Heilbrigðisstarfsfólk getur einfaldlega ekki búið lengur við það skilningsleysi sem stjórnvöld hafa sýnt. Það er í alvöru ekki hægt að halda því fram hér fullum fetum að nóg sé að gert þegar vandinn blasir við okkur á hverjum degi. Það vantar hjúkrunarrými. Það vantar geðheilbrigðisúrræði. Það eru ára langir biðlistar eftir nauðsynlegri heilbrigðisþjónustu fyrir börn og fullorðna og ráðherrar leyfa sér að koma hingað upp í pontu Alþingis og halda því fram að fjármagn muni ekki leysa vandann.
Virðulegur forseti. Góðir landsmenn. Það er ekki náttúrulögmál að neyðarástand ríki í heilbrigðiskerfinu. Það er pólitísk ákvörðun að setja árum saman umtalsvert lægra hlutfall landsframleiðslu í heilbrigðiskerfið en frændríki okkar á Norðurlöndunum gera. En það að halda því fram að það bitni ekki á nauðsynlegri þjónustu við almenning ber vott um afskaplega lítinn skilning á verkefninu. Við megum heldur ekki gleyma því að sökum fæðar og smæðar þessarar þjóðar þá ætti að kosta hlutfallslega meira að reka þjónustuna hér en á Norðurlöndunum. Fjármálaáætlun næstu fimm ára sýnir að ríkisstjórnin hefur ekki í hyggju að sækja fjármagn þangað sem nóg er af því. Ofurarðgreiðslur stórfyrirtækja verða áfram ósnertar á meðan grunnþjónustan skerðist frá degi til dags. Breiðu bökin gildna á sama tíma og mönnunarvandi, sem rekja má til vanfjármögnunar og skilningsleysis stjórnvalda á verkefninu, eykst. Framboð heilbrigðisþjónustu er ónógt, biðlistar of langir, verkefnin verða fyrir vikið þyngri og neyðin meiri. Þetta ástand snertir hvert einasta heimili á landinu og hverfur ekkert á meðan við bregðumst ekki við með verulega auknu fjárframlagi, ekki einu sinni heldur til næstu ára. Þegar ríkissjóður er svo í vanda eftir heimsfaraldur þá þurfum við að hafa ríkisstjórn sem þorir að sækja fé þangað sem það er að finna.
Virðulegur forseti. Ég vil ræða annað hjarta sem er sjálft lýðræðið og það hvernig við eflum það. Hæstv. forsætisráðherra talaði fyrir gagnsæi, trausti og samvinnu við upphaf síðasta kjörtímabils og um að byggja brú til að skapa samstöðu um hvernig leiða megi mál til lykta. Ég er henni sammála um að við þurfum í sameiningu að auka traust á stjórnmálum með meiri samvinnu, en hún þarf þá að ganga í báðar áttir. Góðar tillögur stjórnarandstöðunnar hér á þingi þarf ekki að fella bara í þeim tilgangi að sýna vald sitt. Okkur gengur raunverulega gott eitt til þegar við sem dæmi leggjum fram tillögu um að sjúklingar eigi áheyrnarfulltrúa í stjórn Landspítala. Hvernig gat það verið vond hugmynd að leyfa slíkri rödd heyrast við stjórnarborðið? Hvernig gat það verið vond hugmynd að samþykkja rannsóknarnefnd Alþingis vegna sölunnar á Íslandsbanka? Hvernig gat það verið vond hugmynd að fjármagna sálfræðiþjónustu eða að tryggja að lífeyrir hækki í takt við lífskjarasamninga? Okkur gengur raunverulega gott eitt til og ég held að þetta skaði pólitíska menningu hér á Alþingi og minnki traust á okkar störfum.
En það er fleira sem minnkar traust til okkar í stjórnmálunum. Siðfræðingurinn Henry Alexander Henrysson fjallaði á dögunum um þá staðhæfingu hæstv. forsætisráðherra að gagnsæi auki traust. Sagði hann, með leyfi forseta, að gagnsæi væri raunar andstæðan við traust:
„Við treystum ekki fólki þegar við krefjumst þess að hafa ítarlegar upplýsingar um allar athafnir þess og ákvarðanatöku. […] Gagnsæi getur vissulega komið við sögu þegar [fólk] reynir að efla trúverðugleika sinn. Traustið byggir eftir sem áður fyrst og fremst á því að fólk sýni skilning á eðli þess hlutverks sem það gegnir og hrökkvi ekki í kút þegar því er bent á þær takmarkanir sem hlutverkið kann að leiða af sér.“
Þar sem ríkir traust þarf ekki ótakmarkað gagnsæi. Við þurfum hins vegar átak í að auka traust á stjórnmálum. Það hefur nefnilega ítrekað beðið hnekki eftir að ríkisstjórn Katrínar Jakobsdóttur hóf sinn leiðangur og það breytist ekki nema með því að fólk sem fer með völd viðurkenni og skilji eðli þess hlutverks sem það gegnir.
Góðir landsmenn. Gleðilegt sumar.