Bráðabirgðaútgáfa.

152. löggjafarþing — 87. fundur,  8. júní 2022.

almennar stjórnmálaumræður.

[19:55]
Horfa

Guðmundur Ingi Kristinsson (Flf):

Virðulegi forseti. Góðir landsmenn. Ný ríkisstjórn er tekin við, nauðalík þeirri sem fór frá. Að vísu eru fleiri stólar við langborðið uppi í ráðherrabústað. Þessi ríkisstjórn er fulltrúi þeirra sem hafa nóg á milli handanna og vilja helst ekki vita af tilvist fátæks fólks, öryrkja, fatlaðra og aldraðs fólks. Líkt og svo oft áður lofar ríkisstjórnin heildarendurskoðun almannatryggingakerfisins, betrumbótum í heilbrigðiskerfinu og átaki í húsnæðismálum. En það dugar ekki að lofa öllu fögru. Verkin tala. Vægast sagt.

Fyrir nokkrum vikum staðfesti Hæstiréttur endanlega að þær grimmu búsetuskerðingar, sem lengi viðgengust gagnvart lífeyrisþegum almannatrygginga, hafi verið ólögmætar. Ríkið braut lög. Undir eðlilegum kringumstæðum myndi ríkið greiða öllum þeim sem voru skertir með ólögmætum hætti til baka að fullu. En aðeins stendur til að greiða til baka vegna ólögmætra búsetuskerðinga síðustu fjögur árin en ekki vegna tímabilsins í heild. Já, bara fjögur ár en ekki öll 13 árin. Fáránlegt. Ríkisstjórnin ætlar ekki að borga fátækustu öryrkjunum til baka vegna ólögmætra skerðinga, fólki sem lifði undir fátæktarmörkum síðustu 13 árin vegna ólögmætra skerðinga, fólki sem getur ekki beðið lengur eftir réttlætinu í orðsins fyllstu merkingu. Flokkur fólksins hefur ítrekað kallað eftir skýrum svörum frá ríkisstjórninni um hvernig eigi að berjast gegn fátækt, hvernig eigi að endurskoða almannatryggingakerfið, hvernig við eigum að vernda heimilin, hvernig við eigum að útrýma biðlistum.

Að sögn fjármálaráðherra hafa verið settir tugir milljarða í almannatryggingakerfið á undanförnum árum. Af hverju skilar aukningin sér ekki í vasa fólksins í kerfinu? Það er vegna þess að almannatryggingakerfið er gegnumstreymiskerfi þar sem fjármagnið rennur í götótta vasa aldraðs fólks og öryrkja og þaðan beint aftur í ríkissjóð vegna skatta, skerðinga og keðjuverkandi skerðinga. 100.000 kr. úr lífeyrissjóði skila 25.000 kr. í götóttan vasann ef viðkomandi er heppinn. Þetta er gróft fjárhagslegt ofbeldi og ekki bara gróf skattheimta og skerðingar heldur hrein og klár eignaupptaka sem beint er að fátæku fólki. Þeir sem græða á tá og fingri á sameiginlegum auðlindum þjóðarinnar borga lítið sem ekkert fyrir afnotin og fá að halda ofurgróðanum. Ekki er tekin króna af þeim í skerðingar eða keðjuverkandi skerðingar af tugmilljarða gróðanum. Myndu þessir aðilar sætta sig við að greiða 75% eða meira af gróða sínum til ríkisins? Nei, auðvitað ekki.

Skerðingardagurinn mikli hefst 1. júní ár hvert og guð hjálpi þeim sem lenda í því skerðingarkviksyndi. Á þessum degi og mörgum mánuðum eftir hann er lífeyrir þeirra skertur verulega og fólk sekkur dýpra og dýpra ofan í sárafátækt. Þeir sem eru svo heppnir að voga sér út á vinnumarkaðinn verða fyrir svo miklum tekjuskerðingum að það jaðrar við eignarnám. Þetta þýðir á mannamáli að öryrki sem fékk 250.000 kr. á mánuði fyrir skerðingardaginn í maí í almannatryggingakerfinu fær núna bara um 200.000 kr. útborgaðar eftir skatt og skerðingar á mánuði í heilt ár. Þegar viðkomandi öryrki er búinn að borga hækkun á húsaleigu og öðrum nauðsynlegum reikningum standa bara eftir um 5.000 kr. á mánuði til að lifa af. Ömurlegt.

Virðulegur forseti. Góðir landsmenn. Heilbrigðiskerfið stendur í dag á brauðfótum Mannekla er viðvarandi vandamál og fyrir vikið er meira álag á hverjum og einum starfsmanni. Vaktir eru langar og streitan mikil. Starfsmenn bráðamóttökunnar hafa ítrekað kallað eftir viðbrögðum ríkisstjórnarinnar við því neyðarástandi sem þar ríkir en lítið er um svör. Ég velti því fyrir mér hvort það væri svo mikil mannekla í heilbrigðiskerfinu ef heilbrigðisstarfsmenn fengju sanngjörn kjör og eðlilegan vinnutíma. Biðlistavandinn er ekki nýr af nálinni en ríkisstjórnin hefur látið hann viðgangast ár eftir ár og jafnvel áratugi. Í dag eru um 1.000 börn á biðlista eftir nauðsynlegri þjónustu í heilbrigðiskerfinu. Verst af þessu öllu saman er að börn þurfa að bíða eftir lífsnauðsynlegri þjónustu. Eitt barn á bið er einu barni of mikið. 10% ungmenna á Íslandi hafa íhugað að gera tilraun til sjálfsvígs. Það segir okkur að það er eitthvað rosalega mikið að í þessu meingallaða kerfi okkar. Börn eiga aldrei að þurfa að bíða eftir aðgerðum eða bíða eftir réttlæti. Það má ekki fara í pólitískar skotgrafir þegar hagsmunir barna eru undir. Allt of mörg börn búa við fátækt á Íslandi í dag og það er okkur öllum hér inni til háborinnar skammar.

Ég er miður mín yfir því að við sem búum í auðugu og gjöfulu landi skulum leyfa okkur að láta þúsundir barna lifa í fátækt og því miður einnig í sárafátækt. Ég segi fyrir mitt leyti að það er grafalvarlegt mál ef einhver getur ekki leitað sér læknishjálpar vegna fátæktar eða leyst út lyfin sín. Hækkun barnabóta og hækkun skerðingarmarka þeirra dugar engan veginn til. Á barnafólki skella hækkanir á matvælum og hækkanir ýmsum öðrum gjöldum úr öllum áttum, t.d. fasteignagjöldum, bifreiðagjöldum, sóknargjöldum, útvarpsgjöldum, sorpeyðingargjöldum og fleiri gjöldum og sköttum. Þetta eru gjöld sem ekki bara éta upp þann litla ávinning sem boðaður er í aðgerðum ríkisstjórnarinnar heldur valda þau því að þeir verst stöddu verða að herða fastar sultarólina.

Flokkur fólksins segir: Fólkið fyrst og svo allt hitt. Við höfum ítrekað lagt fram tillögu um hækkun skattleysismarka til að tryggja 350.000 kr. á mánuði skatta- og skerðingarlausar. Við erum með frumvörp og tillögur sem taka á vanda í heilbrigðiskerfinu og menntakerfinu svo tryggja megi að ekkert barn þurfi að lifa við fátækt, hvað þá að svelta. Einnig að börn séu ekki gleymd og grafin á biðlista þangað til það er of seint að gera eitthvað fyrir þau.

Því miður hefur ríkisstjórnin komið í veg fyrir að mál okkar nái fram að ganga, meira að segja frumvarp um bann við blóðmerahaldi, sem hlaut metfjölda umsagna og meirihluti þjóðarinnar styður, mál sem snýst um að koma í veg fyrir að níðst sé á dýri til að ná í hormón til að níðast á öðru dýri. Þetta er ekkert annað en dýraníð af verstu gerð en verður ekki samþykkt hér á Alþingi vegna andstöðu ríkisstjórnarinnar.

Virðulegur forseti. Góðir landsmenn. Hvað er að hjá ríkisstjórn eftir ríkisstjórn sem nærir þá auðugu á kostnað þeirra sem verst hafa það hér á landi? Fólkið sem á ekki til hnífs og skeiðar býr einnig á leigumarkaði við óheyrilega háan leigukostnað með tilheyrandi óöryggi. Það er verið að viðhalda fátæktarvíti fyrir þá sem verst hafa það hér á landi. Þeir verst settu í okkar samfélagi líða nauð á meðan þeir ríku fá meiri og meiri auð — við eigum ekki að sætta okkur við slíkt.

Góðir landsmenn. Eigið góðar stundir.