152. löggjafarþing — 87. fundur,  8. júní 2022.

almennar stjórnmálaumræður.

[21:05]
Horfa

Arndís Anna Kristínardóttir Gunnarsdóttir (P):

Kæra þjóð. Þann stutta tíma sem liðinn er af þessu kjörtímabili hefur mér verið hugleikið eitt grundvallaratriðið sem störf okkar hér á Alþingi byggja á — valdið sjálft sem okkur er treyst fyrir. Hvað er vald? Ef til vill mætti kalla það mátt, forræði, yfirráð. Að hafa völd er að geta haft áhrif á heiminn. Orsök sem hefur afleiðingu. Í víðum skilningi búum við öll yfir einhvers konar valdi, að minnsta kosti höfum við vald yfir eigin sannfæringu. Raunar byggjum við lýðræðið einmitt á valdi einstaklingsins til þess að taka ákvörðun út frá eigin sannfæringu. Mér þykir vænt um lýðræðið vegna þess að það gengur út á að jafna leikvöllinn, vegna þess að þegar við tökum alla peningana, öll vopnin, öll fögru loforðin og allar upplýsingarnar út úr reikningsdæminu situr aðeins eftir mennska sannfæringin sem við búum öll yfir. Lýðræðið þýðir að við sammælumst um að láta vald einstaklingsins yfir eigin afstöðu trompa alla hina þættina, að láta manneskjur ráða á sínum eigin forsendum.

Þegar þjóðin kýs þingmenn til að þjóna hagsmunum sínum á Alþingi lætur hún vald sitt bergmála úr kjörklefunum og alla leið inn í þinghús. Valdið til þess að ákvarða framtíð þjóðarinnar er lagt í hendur okkar þingmanna í góðri trú kjósenda, í von um að við tökum réttu ákvarðanirnar fyrir hönd fólksins sem lánar okkur þetta dýrmæta vald sitt í skamma stund. En það er eitt að hafa vald með höndum og annað að beita því. Þegar við lítum í kringum okkur, hvort sem er hér heima eða annars staðar, blasir við okkur sár sannleikur: Valdi af þessu tagi er ekki alls staðar beitt á skynsaman og réttlátan hátt. Vald er vandmeðfarið því það spillir. Algjört vald spillir algjörlega. Það ætti ekki að koma okkur á óvart að fólk eigi erfitt með að afsala sér valdi, framselja það eða dreifa því þegar það virkar nánast eins og vímuefni á handhafa þess. Þess vegna skiptir að mörgu leyti minna máli hver það er sem stjórnar en þeim mun meira máli hver það er sem tryggir að stjórnandinn missi ekki stjórnina undir áhrifum valdavímunnar. „Hver stendur vörð um varðmennina?” er fornkveðin spurning sem á jafn vel við í dag og í fyrndinni. Hver valdar valdafólkið þegar það lætur blindast af valdi og fer okkur öllum að voða?

Síðustu tíu ár hafa Píratar staðið vaktina. Píratar hafa frá upphafi barist fyrir aukinni dreifingu valds, meira og beinna lýðræði, auknu gagnsæi, heiðarleika og ábyrgð í stjórnmálum. Það sem greinir Pírata einnig frá öðrum flokkum er tryggðin við baráttuna fyrir mannréttindum, gegn ofbeldi og annars konar oki hinna valdameiri á þeim sem minna mega sín — í stuttu máli valdaójafnvægi. Við kunnum að vera fámenn hér á þingi en styrkur okkar nær langt umfram stærð. Við sækjum styrk og þrótt til gildanna sem við höldum í hávegum, til samstöðunnar sem við finnum úti í samfélaginu, frá fólki af holdi og blóði og til ánægjunnar sem hlýst af því að uppskera ávexti erfiðis okkar. Af nógu er þar að taka. Statt og stöðugt höfum við talað máli fólks sem er undirokað eða jaðarsett í okkar samfélagi. Við höfum barist gegn ofbeldi og ofsóknum, jafnvel ofbeldi af hálfu ríkisins sjálfs, gegn konum, hinsegin fólki, ofsóknum gegn fólki sem notar vímuefni og fólki með geðraskanir. Við höfum barist gegn fátækt, mismunun, misrétti og réttindasviptingum og öðru því sem rekja má til áðurnefnds valdaójafnvægis sem gjarnan er viðhaldið af þeim sem meira mega sín. Bara það sem af er árs höfum við komið í veg fyrir frumvarp sem ætlað var að lögfesta þvinganir í geðheilbrigðismálum í stað þess að afnema þær, staðið vörð um réttindi flóttafólks, barist gegn spillingu og einkahagsmunapólitík, fyrir réttindum þolenda ofbeldis og fyrir hagsmunum bæði okkar og komandi kynslóða í loftslagsmálum.

Sama hvað gengur á tökum við Píratar harða afstöðu með sameiginlegum grunngildum okkar allra. Þau eru aldrei til sölu. Ekki fyrir gull, ekki fyrir græna skóga, ekki fyrir atkvæði, ekki einu sinni fyrir lengra sumarfrí. Þetta virðist stundum fara í taugarnar á fólki. Við erum kölluð ósamvinnuþýð, óstjórntæk og ósveigjanleg þegar hugsjónir okkar um lýðræði, mannréttindi og frelsi einstaklingsins til sjálfsákvörðunar standa í mótsögn við fyrirætlanir æðstu valdhafa. Í kjölfarið fylgja tilraunir til að skrumskæla sannleikann, afvegaleiða umræðuna og snúa narratífunni svo rækilega á hvolf að halda mætti að sjálf lýðræðishugsjónin væri helsti óvinur lýðræðisins. Áður en við vitum af munu tveir og tveir jafngilda fimm.

Hver stendur vörð um varðmennina? Kannski mun þjóðin einn daginn geta gripið inn í sjálf í krafti nýrrar stjórnarskrár. Kannski verður einn daginn jafn sjálfsagt að efla lýðræðið og sjálfsákvörðunarrétt fólks eins og það er í dag að hunsa það eftir hentugleika. Þangað til, kæra þjóð, munu Píratar standa vörðinn.