almennar stjórnmálaumræður.
Forseti Alþingis. Góðir áhorfendur. Á friðartímum eru öryggi og varnarmál eðlilega ekki efst í huga fólks. Það er ekki fyrr en að örygginu er ógnað sem mörg gefa þessum þáttum raunverulegan gaum. Sá tími er núna. Þá verður ljóst að í raun hvílir allur okkar hagur á því að við búum við öryggi. Stríð er aftur veruleiki Evrópu og þá er það hlutverk stjórnmálanna að bregðast við af alvöru og af ábyrgð. Þjóðarleiðtogar verða að ræða hvernig breytt heimsmynd hefur áhrif á hagsmuni þjóðarinnar. Árás Rússlands á Úkraínu er í reynd árás á Evrópu alla, árás á þau gildi sem við trúum á, árás á fullveldi, árás á frelsi, árás á lýðræði og árás á mannréttindi. Það sjáum við líka birtast í samstöðunni með Úkraínu og viðbrögðum okkar við árásinni: Efnahagsþvinganir af áður óþekktum þunga og sögulegar aðgerðir til stuðnings Úkraínu. Og samhugurinn hér á Alþingi hefur verið sterkur.
Stríðið hefur haft afgerandi áhrif á evrópsk stjórnmál og hagsmunamat Evrópuþjóða í kjölfarið. Það er af þessari ástæðu að meiri hluti Finna og Svía er nú í fyrsta sinn hlynntur NATO-aðild og að þessar þjóðir sóttu um að gerast aðilar. Það er af þessari ástæðu sem þjóðaratkvæðagreiðsla fór fram í Danmörku og Danir ákváðu að stíga áður óþekkt skref með þátttöku í varnarsamstarfi Evrópusambandsins. Það er af þessari ástæðu að mun fleiri Íslendingar eru nú hlynntir aðild að Evrópusambandinu en þau sem eru andvíg. Allir stjórnmálaflokkar ættu þess vegna að sameinast um að fram fari samtal á vettvangi stjórnmálanna um áhrif stríðsins í Evrópu á öryggis- og varnarhagsmuni íslensku þjóðarinnar, um hvað það þýðir fyrir herlausa þjóð að tilheyra NATO en ekki Evrópusambandinu, um þýðingu frekari Evrópusamvinnu fyrir Ísland, um kosti og galla aðildar. Þau sem taka þessa spurningu alvarlega vita að svarið við grundvallarspurningum er ekki endilega einfalt, en umræðan verður að fá að eiga sér stað hér sem annars staðar. Afstaða Viðreisnar er sú að hagsmunum íslensku þjóðarinnar sé betur borgið í nánara samstarfi við aðrar Evrópuþjóðir, að okkur sé betur borgið fyrir innan en fyrir utan Evrópusambandið. En okkar afstaða er líka alveg skýr um það að þessa ákvörðun verður þjóðin sjálf að fá að taka. Þeir stjórnmálaflokkar sem eru andvígir þátttöku Íslands í samstarfi fullvalda þjóða innan ESB eiga ekki að forðast þetta samtal, þeir ættu að fagna því, taka þátt af ábyrgð og alvöru. Það er óábyrgt að segja núna að Evrópumál séu ekki á dagskrá. Það speglar ekki annað en ótta og óttinn er aldrei góður vegvísir.
Við sjáum hvernig stjórnmálin axla sína ábyrgð og sinna grundvallarhlutverki sínu alls staðar í kringum okkur. Stjórnmálaleiðtogar og flokkar líta á það sem hlutverk sitt að leiða samtal um viðbrögð við stöðunni óháð því hver afstaða þeirra er. Þessi umræða hefur ekki farið fram vegna þess að allir séu sammála, en enginn flokkur segir að þessi mál séu ekki á dagskrá, eins og við heyrum því miður hér í þessum sal. Opið og beinskeytt samtal stjórnmálanna um hagsmunamat hefur farið fram og fyrir vikið er stefna þessara ríkja skýrari. Það heyrist ekki heldur að þjóðaratkvæðagreiðslur séu tóm vandræði, eins og hér hefur verið sagt. Og þá spyr ég: Hvað er svona hættulegt við umræðu um það hvernig við verjum hagsmuni íslensku þjóðarinnar best? Svarið er einfalt: Það er auðvitað ekkert hættulegt við það samtal, það er andstæðan við umræðuna sem er hættuleg; þögnin. Hið lýðræðislega samtal er hinn rétti vettvangur til að rökræða og jafnvel takast harkalega á. Það þroskar umræðuna og skerpir stefnu þjóðarinnar.
Kæru landsmenn. Á friðartímum reynir ekki svo mjög á það að ríkisstjórn Íslands sé klofin í utanríkis- og varnarmálum. Núna er þetta hins vegar augljós veikleiki. Á tímum sem þessum leitar sú spurning á okkur hvort hagsmunum herlausrar smáþjóðar sé betur borgið í virkara samstarfi við aðrar Evrópuþjóðir. Eftir síðari heimsstyrjöld gerðu lýðræðisþjóðirnar sér grein fyrir því að friðurinn yrðu ekki bara tryggður með hervörnum, heldur einmitt með náinni samvinnu ríkja sem sæju hag sinn í auknu samstarfi. Þess vegna er Evrópuhugsjónin svo falleg. Evrópusambandið er í grunninn friðarsamband og nágrannaríki okkar eru ekki í neinum vafa um það eða mikilvægi þess. Það eru ekki heldur nágrannaríki Rússlands, sem nú sækjast eftir aðild. Staðan núna kennir okkur hver þörf lýðræðisþjóða er fyrir samvinnu í þágu öryggis en ekki síður fyrir grunngildin, fullveldið, frelsið, lýðræðið og mannréttindin, viðskiptin og efnahaginn. Við eigum allt undir því að alþjóðakerfið og alþjóðalög séu virt. Við erum sterkari saman sem heild. Þjóðaratkvæðagreiðsla um þetta hagsmunamat sem þjóðin stendur frammi fyrir og umræðan í aðdraganda hennar er frábær leið til að þroska samtalið um hagsmuni Íslands. Það er ekki bara eðlilegt heldur nauðsynlegt að þjóðin fái að taka þessa ákvörðun. Við eigum að treysta íslensku þjóðinni.