almennar stjórnmálaumræður.
Virðulegur forseti. Góðir landsmenn. Æði undarlegu fyrsta þingi þessa kjörtímabils fer senn að ljúka. Það vitum við sem störfum hér inni, en fyrir þá sem horfa á að utan er ekki margt sem bendir til þess að þinglok séu í nánd, nema þær umræður sem hér eiga sér stað núna. Stór mál sem stjórnarflokkarnir ætla sér að klára eru enn í uppnámi eða óklár, svo sem fjármálaáætlun til næstu fimm ára, og t.d. frumvarp til laga um breytingu á regluverki leigubifreiða, sem innviðaráðherra þráast við að leggja fram, nú í þriðja eða fjórða sinn eftir því sem talið er, er unnið með þeim hætti að enn hafa samanlagt engir gestir, engir hagsmunaaðilar, komið fyrir umhverfis- og samgöngunefnd til að færa fram rök með og á móti málinu.
En það eru ekki bara þinglokin sem eru undarleg núna. Það urðu margir hissa í gær þegar formaður Sjálfstæðisflokksins tók því vel að á kjörtímabilinu yrði gengið til heildarendurskoðunar á íslenska fiskveiðistjórnarkerfinu undir forystu matvælaráðherra Vinstri grænna. Sjávarútvegurinn, með sína kosti og galla, er þrátt fyrir allt undirstöðuatvinnuvegur þjóðarinnar og það að fara óvarlega hvað regluverk hans varðar getur haft grafalvarlegar afleiðingar. Það hefði kannski farið betur á því að formaður stærsta stjórnarflokksins hefði staðið með fiskveiðistjórnarkerfinu, kerfinu sem hefur reynst þjóðarbúinu betur en nokkuð annað og er öðrum til eftirbreytni. Miðflokkurinn mun ekki láta sitt eftir liggja þegar kemur að því að standa í lappirnar í þágu íbúa sjávarbyggðanna og þjóðarinnar allrar, með sjávarútveginum.
En það er á fleiri sviðum grunnatvinnuvega þjóðarinnar sem framganga stjórnarflokkanna er undarleg. Eftir ítrekaðar ábendingar um alvarlega stöðu landbúnaðar, bæði vegna uppsafnaðs vanda og bráðavanda vegna hækkunar á áburðarverði og aðföngum, var svar matvælaráðherra að setja á laggirnar spretthóp, eins og hann var kallaður, til að ráða bót á málinu. Þetta gerði ráðherrann tíu dögum eftir að hafa svarað fyrirspurn Ernu Bjarnadóttur, varaþingmanns Miðflokksins. Þar var spurt, með leyfi forseta: Telur ráðherra að grípa þurfi til frekari ráðstafana til að tryggja framboð búvara og afkomu bænda á komandi mánuðum? Ráðherrann svaraði: „Miðað við þær upplýsingar sem ráðuneytið hefur á þessum tímapunkti er þess ekki að vænta að skortur verði á framboði.“
Virðulegur forseti. Þarna liðu tíu dagar á milli þess sem ráðherrann sagði ekkert þurfa að gera þar til hún setti hóp í málið. Spretthóp. Sambandsleysi ráðherra við raunheima náði þarna nýjum hæðum. Öllum þeim sem starfa í landbúnaði var löngu ljóst að staðan væri grafalvarleg. Ef það er ætlun ríkisstjórnarinnar að draga verulega úr matvælaframleiðslu á Íslandi þá er hreinlegra að segja það bara beint út, í stað þess að svelta bændur landsins þannig að þeir hrökklist úr bústörfum og því mikilvæga verkefni að framleiða heilnæmustu landbúnaðarafurðir í heimi.
Hæstv. forseti. Á sama tíma og tal um orkuskipti fær mikið pláss í umræðunni þá virðist hugur ekki alltaf fylgja máli, nema helst hjá þeim sem telja rafmagnið verða til í innstungunni. Vandamál sem blasa við eru enn óleyst. Nú á fimmta ári þessarar ríkisstjórnar og á þriðja ári frá hinu svokallaða aðventuóveðri, þegar öllum voru orðnir ljósir veikleikar flutningskerfis raforku og mikilvægi þess að styrkja dreifikerfið, er enn ekki búið að afgreiða svokallað raflínufrumvarp og staða þess í nefnd með þeim hætti að greinilegt er að enginn raunverulegur vilji er hjá stjórnarflokkunum til að klára málið. Það hafa ekki einu sinni verið kallaðir til gestir fyrir umhverfis- og samgöngunefnd vegna málsins. Og í dag samkvæmt starfsáætlun Alþingis áttu að vera tveir dagar til loka þings. Enn er ekki búið að kalla til neina gesti vegna málsins. Svo tala menn á tyllidögum um að styrkja dreifikerfi raforku — virðulegur forseti, þetta er auðvitað eitthvert grín, en það er því miður á kostnað landsbyggðarinnar.
Virðulegur forseti. Senn styttist í þinglok. Þetta fyrsta þing kjörtímabilsins hefur að mörgu leyti sýnt okkur að sú tilraun að tengja saman stjórnmálaflokka frá argasta vinstri, yfir miðjuna og til hægri, er ekki til þess fallin að færa samfélagið fram á veginn. Það er nefnilega þannig að átakastjórnmál eru nauðsynleg til að breytingar verði. Við sem hér erum eigum að takast á um hugmyndir, um stefnu, við eigum að takast á um það hvort umfang hins opinbera á að vaxa eða minnka. Við eigum að takast á um það hvort hefðbundin borgaraleg gildi, sem hafa fært þjóðina frá örbirgð til velsældar á undrastuttum tíma, eigi að vera í forgrunni áfram eða hvort við göngumst á hönd rétttrúnaðinum sem nú tröllríður hinum vestræna heimi, woke-ismanum þar sem umbúðirnar skipta meira máli en innihald. Ef við tökumst ekki á, tökumst ekki á um hugmyndir, um stjórnmál og lausnir þá munum við fljóta sofandi að feigðarósi.
Góðir landsmenn. Njótið sumarsins, notið það til að velta fyrir ykkur hvernig samfélag þið viljið. Ef þið viljið samfélag byggt á einstaklingsfrelsi, hóflegum afskiptum ríkisvaldsins, samfélag sem grundvallast á styrkum stoðum réttarríkisins en ekki þar sem dómstóll götunnar verður jafnsettur hinum formlegu, þá hvet ég ykkur til að hvílast vel í sumar og taka umræðuna með okkur Miðflokksmönnum í haust. Tökum umræðuna á kaffistofunum, við eldhúsborðið, í heitu pottunum og í saumaklúbbunum, því það mun raunverulega skipta máli. Við verðum að fara að tala um hugmyndir. Þannig færumst við áfram sem samfélag.
Kæru landsmenn. Lifið heil.