152. löggjafarþing — 88. fundur, 9. júní 2022.
lengd þingfundar.
Þrátt fyrir ákvæði 4. mgr. 10. gr. þingskapa, um lengd þingfunda, er það tillaga forseta að þingfundur geti staðið lengur í dag en hvað þingsköp kveða á um. Er óskað atkvæðagreiðslu um þessa tillögu forseta? (BLG: Já.) Atkvæðagreiðslan mun þá fara fram síðar samhliða öðrum atkvæðagreiðslum hér að loknum störfum þingsins.