störf þingsins.
Forseti. Samkvæmt barnalögum eiga börn rétt á að þekkja og umgangast foreldra sína og foreldrar eiga rétt á því að umgangast börn sín. Hins vegar er það grundvallarregla í okkar samfélagi að það sem barni er fyrir bestu skuli ávallt vera í forgangi og við mat á því skipta tilfinningar og afstaða barnsins sjálfs höfuðmáli. Réttur umgengnisforeldris til umgengni við barn er svo sterkur að heimilt er enn þann dag í dag að koma á umgengni með aðför, jafnvel gegn vilja barnsins, telji stjórnvöld sig vita betur. Aðför sem beitt er gegn vilja barns þýðir það að barnið er tekið með líkamlegu valdi, lögregluvaldi jafnvel, og fært úr höndum foreldrisins sem það treystir og leitar verndar hjá, í hendur annars sem það treystir ekki. Óþarft er að fjölyrða um áfallið sem það felur í sér og þau langvarandi sálrænu áhrif sem slíkt áfall hefur á varnarlaust barn.
Norræn löggjöf hefur á síðustu árum þróast í þá átt að lög eru sett út frá sjónarhorni barna í stað foreldra. Það er kominn tími á að taka það alvarlega og raunverulega setja réttindi barna og hagsmuni þeirra í fyrsta sæti, ekki í annað og ekki í þriðja. Aðför er ekki úrræði. Það er úrræðaleysi, eins og við sjáum víðar í kerfinu, þar sem þvingunum og refsingum er beitt vegna þess að kerfið býður ýmist ekki upp á önnur úrræði vegna vankunnáttu, fordóma eða vegna þess að það er of dýrt og tímafrekt að fara manneskjulegar leiðir að því að leysa vandamálin. Börn eiga sjálfstæð réttindi, þar með talið rétt á eigin skoðunum og að á þær sé hlustað og þær virtar. Börnum á ekki að refsa fyrir athafnir eða athafnaleysi foreldra sinna og réttindi foreldra eiga aldrei að trompa réttindi, velferð og farsæld barna.