152. löggjafarþing — 88. fundur,  9. júní 2022.

störf þingsins.

[10:35]
Horfa

Tómas A. Tómasson (Flf):

Virðulegi forseti. Háttvirtur þingheimur og kæra þjóð. Til gamans vil ég geta þess að ég er mjög ánægður með svona hefðir eins og að segja virðulegi og háttvirti. Á fyrstu dögum þingsins þá var ég hérna og var svolítið utan við mig og ég hefði getað svarið fyrir það að ég heyrði þingmann standa hér og segja furðulegi forseti, en ég komst að því að svo var ekki. En alla vega, ég segi hér bara svo að ég skilji: Það er búið að ræða ansi mikið um söluna á Íslandsbanka og sitt sýnist hverjum. Ég ætla að deila með ykkur smá reynslu sem ég hef af hlutabréfaútboðum. Þannig er mál með vexti að ég var tengdur fyrirtæki úti í heimi sem heitir Hard Rock Café. Þeir græddu mest á því að selja peysur. Það var urmull af veitingastöðum út um allan heim sem allir voru að reyna að selja peysur eru engum tókst það. Hard Rock Café hafði einhverja tilfinningu fyrir því hvernig þetta ætti að fara fram og þeir stofnuðu fyrirtæki sem hét Planet Hollywood og það var lyginni líkast. Þeir fengu Arnold Schwarzenegger, Bruce Willis og Sylvester Stallone til liðs við sig og það varð allt vitlaust. Tveimur árum seinna settu þeir fyrirtækið á markað og það er engin lygi að hlutabréfaverð hækkaði um 100% á fyrsta degi. Það sagði enginn neitt og allir voru ánægðir. En núna virðist það vera þannig að það eru einhver áhöld um gengi bréfanna og ég get ekki betur séð í dag en að allir sem keyptu í síðasta útboði séu nú þegar búnir að tapa því að gengið er komið niður fyrir sölugengið. Þannig að ég eiginlega skil ekki út á hvað óánægjan gengur.