störf þingsins.
Forseti. Vegna ræðu hv. þm. Tómasar Tómassonar þá er mér ljúft og skylt að tilkynna að 6. janúar 2017 ávarpaði ég einmitt forseta: Furðulegi forseti, en fékk þau skilaboð að það væri einfaldlega bannað, þannig að það er skráð í sögubækur sem virðulegi forseti. Þannig er það.
En ég vildi fjalla hérna um orð aðstoðarmanns dómsmálaráðherra þar sem fjallað er um lögmætisregluna, með leyfi forseta: „Það er nefnilega enginn skortur á ofstækisfólki með eigið réttlæti að vopni sem er tilbúið að vega að því við hvert tækifæri.“
Hér er verið að fjalla um þær umkvartanir dómsmálaráðherra og fleiri að ekki megi skipta sér af einstaka málum og þá varðandi flóttafólk. En vandinn er sá að það er ekki verið að biðja neinn um að skipta sér af einstaka málum því að upp koma einstök mál sem benda á almennan vanda. Það er það sem vandinn snýst um. Það eru alltaf að koma upp tilvik þar sem stjórnvöld eru að vísa fólki til baka til Grikklands og annarra landa þar sem aðstæður fyrir flóttafólk eru óásættanlegar og íslensk lög gera fyllilega ráð fyrir því að þau geti sagt: Nei, við ætlum ekki að gera það. Og þegar þessi mál koma upp aftur og aftur og aftur þá er ekki um einstök mál að ræða heldur almennan vanda sem við erum að biðja stjórnvöld um að bregðast við. En þau gera það ekki. Þannig að aðstoðarmaður ráðherra, stjórnvöld, viljið þið vinsamlegast hætta að segja að við séum að biðja ykkur um að bregðast við einstökum málum. Það er ekki það sem málið snýst um heldur: Lagið þennan almenna vanda þannig að það sé ekki sífellt verið að senda börn og flóttamenn í óásættanlegar aðstæður í löndum sem hjálpa ekki flóttafólki.