störf þingsins.
Herra forseti. Stundum fáum við svör við fyrirspurnum sem kveikja enn fleiri spurningar en þau svara. Það kemur kannski ekki á óvart að einn af þeim ráðherrum sem svona gerist oftast hjá er hæstv. dómsmálaráðherra þegar hann er spurður út í flóttafólk. Fyrr í vetur spurði ég hann varðandi þvingaðar brottvísanir fólks sem hefur verið synjað um alþjóðlega vernd og á að flytja úr landi. Ég spurði hvaða þvingunarúrræðum hefði verið beitt gagnvart slíkum einstaklingum til að koma þeim úr landi og sérstaklega óskaði ég upplýsinga um það hvort lyf hefðu verið gefin fólki gegn vilja þess í þeim tilgangi að auðvelda yfirvöldum brottvísunina. Svarið sem ég fékk var svo fyndið af því að öllu var svarað nema akkúrat því sem ég bað sérstaklega um að yrði svarað. Það er nú sjaldan sem við undirstrikum svona vel nákvæmlega hvað það er sem við viljum fá fram í svari og þess vegna vakti það grunsemdir að ráðuneytið valdi að svara ekki þessu með þvinguðu lyfjagjöfina.
Ég fylgdi þessu ekki-svari eftir með annarri fyrirspurn þar sem ég spurði eingöngu um þvinguðu lyfjagjafirnar. Svarið sem ég fékk var með miklum ólíkindum. Þar segir að einstaklingum sé ekki og hafi ekki verið gefin lyf gegn vilja þeirra í þeim tilgangi að auðvelda yfirvöldum brottvísun. Hins vegar séu róandi lyf oft gefin slíkum einstaklingum þegar á að handtaka þá ef ástand þeirra er metið þannig að þess þurfi. Svo þegar viðkomandi er metinn nógu rólegur til að hægt sé að sparka honum úr landi þá eru honum ekki gefin lyf til þess, það er búið að því, þá er honum vísað úr landi í lögreglufylgd. Nei, fólki eru ekki gefin lyf gegn vilja sínum, en jú, þau eru samt gefin, segir ráðherrann.
Enn vakna spurningar, herra forseti: Hvaða lagagrundvöllur er fyrir þessu? Hver ákveður þetta? Er það sami trúnaðarlæknir og braut lög þegar hann (Forseti hringir.) samþykkti brottflutning óléttrar albanskrar konu fyrir tveimur árum? Hvernig getur dómsmálaráðherra látið svona viðgangast nema vegna þess einmitt (Forseti hringir.) að umsækjendur um alþjóðlega vernd og fólk á flótta er fólk sem hann vill losna við og það skiptir engu máli hvaða meðulum er beitt til þess.