152. löggjafarþing — 88. fundur,  9. júní 2022.

störf þingsins.

[10:45]
Horfa

Eyjólfur Ármannsson (Flf):

Virðulegur forseti. Nauðsynlegt er að tryggja greiðar samgöngur til og frá höfuðborgarsvæðinu. Þetta er öllum ljóst. Í þeim tilgangi var ráðist í gerð Hvalfjarðarganga, tvöföldun Reykjanesbrautar og nú síðast fjölgun akreina á Suðurlandsvegi. Næsta skrefið er að leggja Sundabraut, þjóðveg sem þverar nesin frá Kleppsvogi áleiðis upp á Kjalarnes. Sundabraut hefur verið á teikniborðinu í áratugi og hefur ítrekað verið til umræðu í aðdraganda borgarstjórnarkosninga sem mikilvæg framkvæmd fyrir Reykjavík og höfuðborgarsvæðið. Nú er komið að ákvörðuninni, hvort verður byggð Sundabrú eða Sundagöng? Sundabrú er 14 milljörðum króna ódýrari en Sundagöng. Sundabrú verður notuð 20% meira en Sundagöng. Sundabraut er afar mikilvæg fyrir byggðir á Vesturlandi, Norðurlandi og á Vestfjörðum. Greiðar samgöngur á höfuðborgarsvæðinu eru forsenda atvinnuuppbyggingar á landsbyggðinni. Sundabraut myndi auðvelda mjög daglegt líf þeirra sem þurfa að ferðast daglega á milli Reykjavíkur og Vesturlands. Sundabraut myndi einnig auðvelda daglegar samgöngur í Árbæ, Grafarvogi, Grafarholti og Mosfellsbæ og gera umferð um Vesturlandsveg úr þessum hverfum greiðfærari. Á þessu svæði búa tugir þúsunda og ferðast flestir daglega um Vesturlandsveg. Vegagerðin áætlar að Sundabraut dragi úr akstri sem nemur 60 milljónum kílómetra árlega. Það munar um minna í loftslagsmálum, svo sannarlega. Óumdeilt er að Sundabraut er þjóðhagslega arðbærasta verkefni sem völ er á í samgöngumálum. Munar þar hundruðum milljarða til lengri tíma litið. Samkvæmt Vegagerðinni eru innri vextir framkvæmdarinnar metnir 10–12% en til samanburðar er almennt litið á að verkefni séu fýsileg ef innri vextir eru yfir 3,5%. Sundabraut er því þjóðhagslega hagkvæmasta vegaframkvæmdin sem völ er á. Nýskipaður meiri hluti borgarstjórnar hefur gefið í skyn að lítið annað verði gert á næstu fjórum árum (Forseti hringir.) en að ráðast í umhverfismat vegna Sundabrautar. (Forseti hringir.) Nú er komið að ákvörðuninni hjá borgarstjórn og innviðaráðherra.