152. löggjafarþing — 88. fundur,  9. júní 2022.

störf þingsins.

[10:47]
Horfa

Diljá Mist Einarsdóttir (S):

Virðulegi forseti. Nýlega var framkvæmd þjónustukönnun um þjónustu heilsugæslustöðva á höfuðborgarsvæðinu og sneri könnunin að ánægju og trausti notenda. Niðurstöðurnar eru þær að meiri hluti notenda ber mikið traust til heilsugæslunnar en þó er töluverður munur á stöðvunum þegar þær eru bornar saman. Það vekur sérstaka athygli hversu ánægðir notendur einkareknu stöðvanna í Lágmúla, Salahverfi, á Höfða og í Urðarhvarfi eru með þjónustu sinna heilsugæslustöðva. Notendur í minni heimabyggð, Grafarvogi, eru hins vegar óánægðastir í þessum samanburði á öllum stöðvunum eins og það er nú annars gott að búa í Grafarvogi. Þessar niðurstöður eru í samræmi við aðrar kannanir sem hafa sýnt að ánægja og traust notenda einkarekinna heilsugæslustöðva mælist meira en þeirra sem eru reknar af hinu opinbera. Einkarekstur heilsugæslustöðva hefur reynst vel. Það er mikilvægt að fólk hafi valfrelsi í heilbrigðisþjónustu eins og annarri þjónustu. Þess vegna þurfum við að nýta okkur fjölbreytt rekstrarform í heilbrigðiskerfinu en þannig bætum við aðgengi og styttum biðlista og styrkjum þjónustu í nærumhverfi.