störf þingsins.
Virðulegi forseti. Staða ungs fólks á Íslandi er að mörgu leyti góð. Hér er friðsælt og lífsgæði eru há á heimsmælikvarða. En það hallar líka stundum á unga fólkið. Tekju- og eignamyndun ungs fólks hefur ekki haldið í við kynslóðirnar á undan og þá skiptir orðið miklu hversu burðugt bakland foreldranna er. Tækifærin á Íslandi eru ekki jöfn. Ungt fólk kemst seinna á lífsleiðinni inn á fasteignamarkaðinn og það er ekki gefið að hagur ungs fólks eftir 40 eða 50 ár verði betri en þeirra sem nú eru að ljúka starfsævinni. Hún er því varhugaverð sú ákvörðun nokkurra stærstu lífeyrissjóðanna að innleiða misskiptingu í réttindaávinnslu sjóðfélaga á grundvelli aldurs. Spár um hærri lífaldur í framtíðinni leiða til þess að réttindi fólks hækka ekki jafnt heldur verður hækkun elsta aldurshópsins meira en tvöfalt hærri en þess yngsta. Jafngildir það tugmilljarða millifærslu á réttindum yngra fólks til þess eldra. Það byggir á hækkun lífaldurs en við vitum ekki hvernig framtíðin verður, hvort spár ganga eftir, hver staða 17 ára einstaklings verður þegar hann verður 67 ára. Við vitum t.d. ekki hvort eftirlaunaaldur verður hækkaður. Við vitum ekki hver þróun lífsgæða verður og ég nefni í þessu sambandi loftslagsbreytingar sem eru því miður stór breyta þar um.
Grunngildi samtryggingar er að áhættan dreifist með jöfnum hætti á alla og við greiðum inn sama hlutfall og eigum að eiga sömu réttindin. Ef við hverfum frá því og opnum fyrir misskiptingu í þessu kerfi samtryggingar vakna stórar spurningar. Staða lífeyrissjóðanna er þannig að ekki er þörf á þessari misskiptingu og hún gengur gegn markmiðum kerfisins.