152. löggjafarþing — 88. fundur,  9. júní 2022.

störf þingsins.

[10:53]
Horfa

Guðmundur Ingi Kristinsson (Flf):

Virðulegur forseti. Við lifum í skrýtnu þjóðfélagi, þjóðfélagi sem leggur hindranir fyrir fólk, veikt fólk, öryrkja, fólk í hjólastólum. En það merkilegasta við það er að þær hindranir eru oft smámál miðað við þær hindranir sem ríkisstjórn eftir ríkisstjórn leggur á þetta fólk. Að hugsa sér að einstaklingur sem er öryrki og ætlar að reyna að safna sér fyrir útborgun í íbúð á enga möguleika til þess vegna gildra í kerfinu. Viðkomandi má ekki eignast fjármagnstekjur nema upp að ákveðnu marki í hverjum mánuði. Hvernig getum við réttlætt það á sama tíma og þeir auðugu geta safnað að sér auði alveg ótakmarkað með tuttugu og eitthvað prósent skatti? Á sama tíma erum við að níðast á þeim sem minnst hafa og eru veikir. Það er eitthvað að þessu kerfi okkar og það er vitlaust gefið. Á sama tíma segjum við og setjum í lög að fólk eigi að borga í lífeyrissjóði. Lögþvingaður, eignaupptökuvarinn lífeyrissjóður. En hvað er gert? Jú, hann er líka hirtur upp að 75% og allt upp í 100%. Á sama tíma sleppa auðmennirnir. Þeir fá bara lágmarksskatt. Við hljótum að geta séð til þess að lífeyrissjóðurinn, sem eru tekjur og að hluta til fjármagnstekjur — ef þetta væri flokkað sem tekjur gætum við boðið upp á 200.000 kr. frítekjumark. Þetta væri hægt að gera strax. Þetta myndi skipta sköpum fyrir þá sem fá úr lífeyrissjóði, og ég tala nú ekki um þá sem fá minnst úr lífeyrissjóði og það er að stærstum hluta konur. Breytum þessu.