152. löggjafarþing — 88. fundur,  9. júní 2022.

störf þingsins.

[10:55]
Horfa

Bergþór Ólason (M):

Virðulegur forseti. Mig langar að gera málefni Breiðafjarðarferjunnar Baldurs að umtalsefni. Fyrir rúmu ári gerðum ég og fyrrverandi þingmaður, og núverandi 1. varaþingmaður Miðflokksins í Norðvesturkjördæmi, Sigurður Páll Jónsson, tillögu um að gamli Herjólfur kæmi inn til siglinga um Breiðafjörð í stað þess Baldurs sem nú siglir. Við skrifuðum grein í Bæjarins besta, en þar segir, með leyfi forseta:

„Skilgreint varaskip fyrir Baldur, skv. samningum Vegagerðarinnar, er Gamli-Herjólfur, sem er auðvitað stærra og öflugra skip en sá Baldur sem nú siglir. Undirrituðum“ — þeim sem hér stendur og fyrrverandi þingmanni, Sigurði Páli Jónssyni — „þykir blasa við að Vegagerðin beini úrlausn málsins í þann farveg að Herjólfur hefji nú þegar siglingar um Breiðafjörð, á meðan Baldur er í viðgerð“ — þá var Baldur bilaður eins og svo oft hefur verið — „og mögulega eitthvað áfram. Smávægileg aðlögun á rampi sitthvorum megin Breiðafjarðar er smáatriði í stóru myndinni og ef aðkoma Samgöngustofu sem eftirlitsaðila er nauðsynleg, þá þarf að ganga í það mál.“

Þessu var auðvitað öllu vísað frá á sínum tíma en nú er unnið að lausninni á þessum forsendum þannig að betur hefði farið á því að strax hefði verið hlustað á tillögur okkar Miðflokksmanna í þessum efnum. Það sem ég vil sérstaklega vekja athygli á núna er það hversu ótryggar siglingarnar eru. Fjöldi ferða er mjög takmarkaður og með því mikla magni af fiskeldisafurðum sem þarf að koma frá Vestfjörðum á erlenda markaði er staðan algerlega ótæk eins og hún er núna. Það verður að finna lausn til þess að í samkomulagi sveitarfélaga, rekstraraðila og Vegagerðar sé hægt að fjölga ferðum þannig að við gjöreyðileggjum ekki þá vegi sem enn eru ólagfærðir á Vestfjörðunum með yfirgengilegum þungaflutningum þegar svo hæglega er hægt að leysa það með flutningum með (Forseti hringir.) Breiðafjarðarferjunni á meðan þess er beðið að vegakerfið verði (Forseti hringir.) forsvaranlegt.