152. löggjafarþing — 88. fundur,  9. júní 2022.

störf þingsins.

[11:00]
Horfa

Steinunn Þóra Árnadóttir (Vg):

Hæstv. forseti. Mig langar, þegar farið er að síga verulega á seinni hluta þessa þings, að ræða um störf þingsins undir liðnum störf þingsins. Í gær var breytt út frá því sem verið hefur til margra ára í fyrirkomulagi eldhúsdagsumræðna þar sem einungis tveir þingmenn töluðu frá hverjum flokki. Það þýddi að umræðan varð styttri og mér fannst hún líka verða snarpari. Ég verð að viðurkenna að ég fylgdist betur með og hélt athyglinni betur og mér fannst það til verulegra bóta að gera þetta svona. Ég átta mig á því að auðvitað eru sjónarmið ólík, flokkarnir eru misstórir. En mig langar að beina því til hæstv. forseta, forsætisnefndar og formanna þingflokka að fara yfir þetta form og vita hvort fleiri en ég hafi upplifað þetta með sama hætti því mér fannst þetta vera gott.

Að sama skapi langar mig að vekja máls á því að ég myndi á stundum gjarnan vilja sjá dínamískari umræður hér í þessum þingsal. Mér hefur fundist það gott þegar samið hefur verið um umræðutíma og talsmenn flokka hafa talað í málum sem kannski er ekki svo mikill pólitískur ágreiningur um en sjónarmið vissulega ólík. Ég myndi vilja sjá meira af slíku en vitaskuld þarf það að vera þannig að stjórnarandstaðan geti alltaf komið sínum sjónarmiðum að þegar um heit pólitísk mál er að ræða.

Mig langar að nota þessa síðustu þingdaga í þessar vangaveltur og að beina því til forseta að skoða hvernig við getum gert þingstörfin skemmtilegri og dýnamískari.