152. löggjafarþing — 88. fundur,  9. júní 2022.

störf þingsins.

[11:02]
Horfa

Guðbrandur Einarsson (V):

Virðulegur forseti. Það skiptir máli fyrir budduna hvar þú býrð. Samanburður Byggðastofnunar á fasteignamati og fasteignagjöldum árið 2020 leiðir í ljós að lóðarleiga í Reykjanesbæ er áberandi hæst miðað við viðmiðunarsvæðin; 126.000 kr., sem er 38,7% hærra en í Grundarfirði þar sem næsthæsta lóðarleigan er, 91.000 kr. á ári. Álagningin að meðaltali í Reykjanesbæ er 1,75% af lóðarmati á móti 1,9 í Grundarfirði. Lægst er lóðarleigan í Kópavogi miðað við krónutölu, tæpar 17.000 kr. á ári, og því er lóðarleiga í Reykjanesbæ rúmlega 600% hærri en lóðarleigan í Kópavogi. Ríkið er stór landeigandi í Reykjanesbæ og rukkar 2% lóðarleigu á meðan sveitarfélagið veitir 25% afslátt af lóðarleigu af því landi sem sveitarfélagið á. Þeir sem borga lóðarleigu til Reykjanesbæjar greiða því 1,5% lóðarleigu. Landeigendur aðrir en ríkið hafa ekki ljáð máls á því að lækka leigu á landi á meðan ríkið er ekki til viðtals um lækkun leigu. Stjórnendur Reykjanesbæjar reyndu á sínum tíma að fá ríkið til þess að lækka lóðarleiguna, en þau svör sem embættismenn veittu voru á þann veg að íbúðir á Ásbrúarsvæðinu hafi verið seldar svo ódýrt og þess vegna ætti að ná inn tekjum í gegnum lóðarleigu í staðinn. Það skýtur skökku við að þeir sem hafa keypt á Ásbrúarsvæðinu sitji uppi með okurlóðarleigu vegna þess að ríkið seldi eignir sem það fékk næstum gefins á útsöluprís. Það verður að gera þá kröfu til ríkisvaldsins að það sýni samfélagslega ábyrgð og gott fordæmi og lækki lóðarleigu. Það getur ekki gengið að íbúar í Reykjanesbæ greiði 600% hærri lóðarleigu en íbúar í Kópavogi.