152. löggjafarþing — 88. fundur,  9. júní 2022.

störf þingsins.

[11:04]
Horfa

Sigmar Guðmundsson (V):

Virðulegi forseti. Eins og margir vita hefur verið samtal á milli ríkisstjórnarinnar og þriggja stjórnarandstöðuflokka vegna útlendingafrumvarpsins sem núna liggur fyrir þinginu. Vilji þessara þriggja stjórnarandstöðuflokka, Viðreisnar, Samfylkingar og Flokks fólksins, var sá að laga mjög vont frumvarp dómsmálaráðherra og ríkisstjórnarinnar þannig að réttur fólks á flótta yrði betur tryggður. Við gerðum nokkrar tillögur við frumvarpið sem m.a. byggði á sjónarmiðum Rauða krossins, enda tökum við það hlutverk okkar alvarlega að gera allt sem í okkar valdi stendur til að verja þennan hóp. Við vildum alls ekki að hægt væri að sækja viðkvæmar persónuupplýsingar án samþykkis viðkomandi í þágu meðferðar málsins. Það skipti okkur verulegu máli að fólk yrði ekki svipt framfærslu 30 dögum eftir að niðurstaða væri komin í mál þeirra, enda myndi það hafa hræðilegar afleiðingar í för með sér fyrir fjölda fólks. Við vildum að það fólk sem hér væri læst inni í faraldrinum yrði ekki sent á brott, enda hefur það fest rætur á löngum tíma. Við lögðum til breytingar um að umsækjendur um alþjóðlega vernd njóti áfram lágmarksverndar stjórnsýslulaga um endurupptöku máls vegna nýrra gagna eða upplýsinga. Við vildum standa vörð um rétt kvótaflóttafólks til fjölskyldusameiningar hér á landi, að það sé til jafns við aðra. Einnig að umsækjendur um alþjóðlega vernd sem ekki hefur tekist að endursenda eða er brottvísað til annars ríkis innan tveggja ára, að það fólk eigi kost á að sækja um dvalar- og atvinnuleyfi. Og það voru fleiri hugmyndir þarna inni. Allar þessar tillögur Viðreisnar, Samfylkingar og Flokks fólksins eiga það sammerkt að bæta stöðu þessa fólks verulega miðað við þau skelfilegu áform sem eru í frumvarpi dómsmálaráðherra og njóta eindregins stuðnings allra ríkisstjórnarflokkanna, einnig VG og Framsóknar, svo maður taki það sérstaklega fram, og það er ljóst að flokkarnir þrír vildu keyra málið í gegn.

Nú liggur fyrir að ríkisstjórnin ætlar ekki að ljá máls á þessum breytingum, slær á útrétta sáttarhönd. Það á því ekki að bæta stöðu og réttarvernd fólks á flótta miðað við hið vonda frumvarp. Það náðust ekki samningar um þessi atriði. Það liggur því fyrir að ríkisstjórnarflokkarnir þrír, líka VG og Framsókn, munu að óbreyttu samþykkja á næstu dögum alvarlega aðför gegn réttindum fólks á flótta. Þessu hefði verið hægt að afstýra ef pólitískur vilji væri fyrir hendi og lágmarksvirðing fyrir almennum mannréttindum fólks á flótta.