kosning ríkisendurskoðanda skv. 2. gr. laga nr. 46/2016, um ríkisendurskoðanda og endurskoðun ríkisreikninga, til sex ára frá 9. júní 2022.
Tekið er fyrir 2. dagskrármálið, kosning ríkisendurskoðanda samkvæmt 2. gr. laga nr. 46/2016, um ríkisendurskoðanda og endurskoðun ríkisreikninga, til sex ára, frá 9. júní 2022.
Um kosninguna gildir ákvæði í 7. mgr. 82. gr. þingskapa sem segir að þegar kjósa á um einn mann séu þeir einir í kjöri sem tilnefndir eru og eigi hreyfa andmælum við því. Samkvæmt 2. gr. laga um ríkisendurskoðanda og endurskoðun ríkisreikninga, nr. 46/2016, gerir forsætisnefnd tillögu til Alþingis um einstakling til að gegna embætti ríkisendurskoðanda. Á fundi forsætisnefndar 7. júní sl. var samþykkt að gera tillögu um Guðmund Björgvin Helgason í embættið. Aðrar tilnefningar hafa ekki borist forseta innan þess frests sem lög ákveða og er hann því einn í kjöri.
Forseti hefur ákveðið að kosningin verði með atkvæðagreiðslukerfinu eins og þingsköp heimila. Henni má jafna við leynilega skriflega kosningu. Atkvæðagreiðslukerfið verður nú þannig stillt að töflurnar á veggjunum munu aðeins sýna hverjir hafa greitt atkvæði en ekki hvernig þeir greiddu atkvæði. Hið sama gildir um geymsluminni tölvunnar. Þeir sem kjósa Guðmund Björgvin Helgason ýti á já-hnappinn en þeir sem vilja skila auðu ýti á hnappinn sem merktur er: Greiðir ekki atkvæði. Nei-takkinn er óvirkur. Gult ljós kviknar við miðhnappinn á borðum þingmanna þegar atkvæði hefur verið greitt, sama á hvorn hnappinn menn hafa ýtt. Eins kviknar aðeins gult ljós á veggtöflum.
[Gengið var til kosningar. Atkvæði féllu þannig að Guðmundur Björgvin Helgason hlaut 54 samhljóða atkvæði, þrír greiddu ekki atkvæði.]