152. löggjafarþing — 88. fundur,  9. júní 2022.

niðurstöður barnaþings, munnleg skýrsla forsætisráðherra. - Ein umræða.

[13:46]
Horfa

Diljá Mist Einarsdóttir (S):

Virðulegi forseti. Hér hafa verið fluttar margar góðar ræður og við hlustunina rifjaðist upp fyrir mér bíltúr sem ég fór í með kunningja mínum fyrir nokkrum árum síðan. Þegar við vorum að koma að heimili hans þá kom hópur af börnum að bílnum og þau fóru að berja í rúðurnar. Hann hlær og gantast eitthvað á móti og ég segi við hann: Oh, börn geta verið svo þreytandi. Hann segir við mig: Mér finnst þetta allt í lagi. Ég hef gaman af því þegar börn eru að pönkast svona í fullorðnu fólki. Áratugum og öldum saman hafa börn verið svo kúguð og svo undirokuð að ég er ánægður með þau þegar þau láta til sín taka.

Íslenska barnaþingið er sannarlega góður vettvangur fyrir börn til að láta til sín taka, til að koma sjónarmiðum sínum á framfæri. Eftir að hafa tekið þátt í þinginu núna er mér óhætt að hrósa skipulagi þess og fyrirkomulagi sérstaklega en best heppnuð var auðvitað þátttaka barnanna. Það fór ekki fram hjá þátttakendum hversu mikið þau láta sig varða málefni samfélagsins okkar og hversu áhugasöm þau eru um að hafa áhrif á það til hins betra. Á þinginu settu börnin sér sjálf ákveðin gildi, m.a. jákvæðni, gleði og virðingu fyrir öllum og ég er ekki frá því að við sem hér sitjum gætum tekið okkur þau til fyrirmyndar. Á þinginu leggja börn fram hugmyndir um málefni sem þau vilja leggja sérstaka áherslu á. Eftir að niðurstöður þingsins eru teknar saman reynir umboðsmaður barna svo að koma tillögum barnaþingsins á framfæri og í framkvæmd í samræmi við ákvæði barnasáttmálans.

En hver skyldu nú vera mikilvægustu skilaboð og gildi barnasáttmálans? Það er einmitt að allar ákvarðanir sem varða börn eigi að vera teknar út frá því sem er þeim fyrir bestu og við þetta tilefni, þessa umræðu hér, má ég til með að rifja upp enn og aftur hversu fyrirferðarlítil þessi sjónarmið voru hér þegar ákvarðanir voru teknar varðandi heimsfaraldur. Það mátti öllum vera ljóst mjög snemma í því ferli að hagur barna var ekki alltaf hafður að leiðarljósi við þá ákvarðanatöku. Í því tilliti brugðumst við börnunum og forgangsröðun okkar. Ég rifja þetta upp svo við gleymum því ekki, svo við lærum í það minnsta af þessari framgöngu okkar í garð barna. Það getur aldrei verið ásættanlegt að fórna réttindum og heilsu barna til að vernda aðra en þau sjálf.

Þegar við ræðum hér niðurstöður barnaþings eftir að við gátum loks haldið það eftir takmarkanirnar sem við settum á vegna heimsfaraldurs langar mig sömuleiðis að minna á það að réttindi barna og rödd barna eru mikilvægust þegar vegið er að þeim. Þegar skoðanaskipti um borgaraleg réttindi og frelsi fólks og frelsi barna eru óvinsæl þá er mikilvægast að halda barnaþing. Þá er mikilvægast að við þingmenn ræðum réttindi barna, skoðanir þeirra og tillögur.

Hommar ættu að mega gefa blóð. Öryggi alls staðar. Kennarar mega ekki vera rasistar. Minni stærðfræðiheimavinnu. Fulltrúar á barnaþingi lágu svo sannarlega ekki á skoðunum sínum og vinna þeirra skilar fjölmörgum góðum tillögum. Framlag barna er ómetanlegt, segir í skýrslu barnaþingsins. Látum ekki orð barna okkar, hugmyndir þeirra og tillögur vera enn eitt atriðið sem við fullorðna fólkið skreytum okkur með þegar það hentar okkur.