niðurstöður barnaþings, munnleg skýrsla forsætisráðherra. - Ein umræða.
Frú forseti. Ég ætla ekki að hafa þetta langt, ég ætlaði eingöngu að þakka hv. þingmönnum sem hafa talað hér. Við ræðum dálítið um það hér hvort við séum að hlusta á börn í raun og veru og ég verð nú að segja það, eftir að hafa fylgst með hv. þingmönnum á barnaþingi, að já, þessir hv. þingmenn eru að hlusta á börn, eru að taka mark á þeirra sjónarmiðum. Stundum er dálítið erfitt að mæla afrakstur eða árangur svona þings. Við getum sagt: Bíddu, hvað af tillögunum komst til framkvæmda innan tiltekins tíma? Það eru þá mjög mælanleg markmið en ég hef ekki síður trú á hinum óbeinu áhrifum sem eru í raun og veru þessi menning sem skilaði sér til hv. þingmanna, sem hefur skilað sér í ræðum. Ég hef heyrt hv. þingmenn vitna í þetta þing hér í sínum ræðum þegar upp hafa komið mál sem tengjast viðfangsefnum barnaþings, óbein áhrif sem líka eru mjög mikilvæg. Það er kannski þannig sem ég nálgast þetta verkefni. Ég lít á þetta sem ferðalag sem hófst hér með lagabreytingum 2018 og snýst um það hvernig við getum aukið áhrif barna og ungmenna á samfélag sitt, hvernig við getum styrkt barna- og ungmennalýðræði á vettvangi landsmálanna og mér finnst það ferðalag ganga vel. Það sem ég er hvað ánægðust með er einmitt þetta virka samtal sem við höfum upplifað á milli þingmanna og barnaþingmanna sem ég vonast til að verði áframhald á.
Við hlökkum til næsta barnaþings. Þá gefst okkur líka færi á því að taka stöðuna í aðdraganda þess og sjá í raun og veru hverju niðurstöður þessa þings hafa skilað. Ég held að það sé kannski næsta verkefni okkar hér á þinginu, þ.e. að velta því fyrir okkur í aðdraganda næsta þings hvað hefur breyst frá síðasta barnaþingi og fyrsta barnaþinginu? Hver hafa áhrifin verið og munum við sjá það á næstu þingum? En ég hef annars ekki fleiri orð um þetta, frú forseti, og þakka fyrir góða umræðu.