almannavarnir.
Frú forseti. Hér er um annað mikilvægt frumvarp að ræða. Að hluta til er verið að festa ákveðið verklag í lög, t.d. um almannavarnastig. Við höfum öll heyrt þessi almannavarnastig fara upp og niður, bæði í Covid og í eldgosum og jarðskjálftum og öðru þannig að það ætti ekki að koma okkur á óvart. En það er gott að hafa þetta bundið í lögin. Einnig er verið að auka kröfur um rýni almannavarnaaðgerða, sem er af hinu góða, og gerðar ýmsar aðrar breytingar sem skýra út atriði sem voru kannski ekki nógu skýr í fyrri lögum. Það sem ég tel hins vegar mikilvægasta hlutann í frumvarpinu er ein lítil málsgrein þar sem talað er um það hvernig við getum tekið á móti erlendum björgunaraðilum ef við þurfum á þeim að halda eftir miklar náttúruhamfarir. Ef mjög alvarlegur jarðskjálfti myndi eiga sér stað höfum við t.d. ekki auðveldlega getað fengið, eða alla vega ekki löglega, leitarhunda hingað til lands, ekki fyrr en búið er að samþykkja þetta frumvarp. Það eru ekki mjög margir þjálfaðir rústabjörgunarhundar í landinu og hundar eru eitt öflugasta verkfærið sem við getum fengið til að leita í rústum. Það að geta fengið hunda að utan með þeim björgunarsveitum sem kæmu til að aðstoða björgunarsveitirnar okkar er spurning um að bjarga mannslífum. Eftir að hafa sjálfur um árabil verið stjórnandi íslensku alþjóðabjörgunarsveitarinnar, og m.a. farið til Haítí eftir jarðskjálftann þar, þá get ég staðfest að þetta er hlutur sem mun bjarga lífi fólks. En það eru ekki bara hundarnir sem skipta máli. Það er nefnilega líka þannig að með slíkum björgunarteymum kæmu læknar og hjúkrunarfólk. Það er ekki sjálfkrafa að við viðurkennum og getum leyft þeim að starfa hér á landi þó að það sé á neyðartímum. En þessi lagabreyting heimilar ráðherra að setja reglugerð um það hvernig eigi að gera þetta allt saman. Ég veit bara að þetta er hlutur sem við munum lenda í, það er bara spurning hvenær við þurfum að biðja um aðstoð. Þá er eins gott að við hér á Alþingi séum búin að búa til regluverkið og lögin og lagastuðninginn til þess að við þurfum ekki að nota hinn gamla málshátt að neyð brjóti lög. Við eigum frekar að hafa lögin tilbúin fyrir neyðina.
Það er von mín að þingheimur styðji þetta frumvarp og við getum verið tilbúin til þess að taka á móti aðstoð ef við þurfum á því að halda strax og frumvarpið er orðið að lögum.