152. löggjafarþing — 88. fundur,  9. júní 2022.

hjúskaparlög.

163. mál
[14:13]
Horfa

Gísli Rafn Ólafsson (P):

Frú forseti. Bara örstutt. Ég hefði viljað sjá okkur taka við nokkrum af þeim athugasemdum sem komu fram í 1. og 2. umr. varðandi það að einfalda það ferli sem er notað þegar fólk er að skilja, sérstaklega af því að verið er að breyta skilnaðargreinum laganna. Ég vonast bara til þess að við hér á þingi getum komið okkur saman um slíkar breytingar og afgreitt þær á næsta þingi.