152. löggjafarþing — 88. fundur,  9. júní 2022.

heilbrigðisþjónusta.

433. mál
[14:14]
Horfa

Björn Leví Gunnarsson (P):

Forseti. Við klárum þetta mál eftir 3. umr. og greiðum atkvæði um að fá stjórn yfir Landspítalann. Það er pínu sorglegt að breytingartillögunni, um að starfsfólk og fulltrúi úr notendaráði hafi aðkomu að stjórninni, hafi verið hafnað. Ég vil ítreka það sem ég sagði í öðrum umræðum um þetta mál, ég held í alvörunni að stjórnin sé ekki nauðsynleg. Þetta er ekki slæmt að því leyti til að stjórnvöld eru að koma á einhvers konar millilið milli þingsins og ráðuneytisins og svo Landspítalans þar sem kannski væri hægt að fá meiri upplýsingar. Við höfum fengið mjög mikið af upplýsingum um það hver staðan er í heilbrigðiskerfinu. Einhverra hluta vegna virðast stjórnvöld einfaldlega ekki hafa trúað því þrátt fyrir að afleiðingarnar séu að birtast okkur aftur og aftur. Það er gefin út viðvörun, neyðarkall, en ekkert gerist. Þrátt fyrir það er haldið áfram með óbreytt fyrirkomulag. Aftur er þá að sjálfsögðu viðvörun og neyðarkall og einhvern veginn breytist ekki neitt. Ekki er hlustað á þær ábendingar sem hafa verið að berast frá spítalanum eða öðrum aðilum, meira að segja í skýrslum sem við höfum fengið frá óháðum aðilum. Ekki er brugðist við því. Þegar ríkisstjórnin hefur skipað stjórnina fólki sem hún setur þar inn verður kannski tekið mark á því fólki. Ég átta mig satt að segja ekki alveg á því hvernig fyrirkomulagið á að vera. Ef svo verður þá er það ekkert nema jákvætt. Þangað til hlakka ég bara til að fá betri upplýsingagjöf. Kannski þetta skili því að stjórnin krefjist meiri og nákvæmari upplýsinga sem þingið getur þá einnig fengið þegar verið er að ákveða fjárheimildir. Ef það tekst, ef það verður afurðin af þessu, þá er það jákvætt en tilkostnaðurinn við það er þó nokkuð mikill, myndi ég segja. Það ætti að vera tiltölulega auðvelt að hafa gagnsæi í rekstri heilbrigðiskerfisins sem hefur einhvern veginn ekki verið. Við höfum fengið mjög misvísandi upplýsingar um það hvað ráðuneytið veit miðað við hvað Landspítalinn er að reyna að segja því. Þá fáum við upplýsingar frá heilbrigðisráðuneytinu sem eru ekki eins nákvæmar og upplýsingarnar sem Landspítalinn útvegaði ráðuneytinu þannig að þingið fær í raun lélegri upplýsingar nema það fái þær beint frá Landspítalanum. Það er náttúrlega slæmt. Ég á eftir að sjá hvort stjórnin verður einhvers konar hliðvörður eða eitthvað því um líkt gagnvart þinginu. Það er eitthvað sem getur gerst líka. Það væri þá neikvætt, ég er bara ekki alveg viss með þetta. Ég ætla að taka jákvæða pólinn á þetta og segja að það sé líklegra að þetta sé jákvætt skref. En það er í rauninni ekki nema vegna þess að þessir blessuðu stjórnarliðar hafa ekki hlustað á mjög skýrar raddir og mjög skýrar ábendingar í allt of langan tíma. Ég vonast til þess að þarna verði loksins einhverjir sem stjórnvöld taka mark á. Þau hafa ekki tekið mark á neinum öðrum hingað til. Ef stjórnvöld setja sína fulltrúa þarna inn taka þau kannski mark á þeim.