152. löggjafarþing — 88. fundur,  9. júní 2022.

loftslagsmál.

471. mál
[14:28]
Horfa

Frsm. meiri hluta um.- og samgn. (Orri Páll Jóhannsson) (Vg):

Virðulegi forseti. Ég mæli hér fyrir nefndaráliti með breytingartillögu um frumvarp til laga um loftslagsmál, nr. 70/2012, er varðar einfalda leiðréttingu hluta. Nefndarálit vegna málsins liggur frammi. Það er sáraeinfalt og skýrir sig sjálft og undir það rita allir meðlimir umhverfis- og samgöngunefndar.