152. löggjafarþing — 88. fundur,  9. júní 2022.

niðurgreiðsla húshitunarkostnaðar.

582. mál
[17:54]
Horfa

Frsm. atvinnuvn. (Stefán Vagn Stefánsson) (F) (andsvar):

Forseti. Ég þakka hv. þm. Birgi Þórarinssyni fyrir þetta síðara andsvar. Við ræddum þetta aðeins í nefndinni varðandi heita vatnið og leit að heitu vatni á köldum svæðum. Það er alveg ljóst, eins og hv. þingmaður kom inn á áðan, að það er gríðarleg auðlind og mikil gæði í því fólgin að vera með heitt vatn í sínu nærumhverfi. Ég tek heils hugar undir með honum, og ég held að nefndin geri það líka, að sjálfsögðu megum við ekki og eigum ekki að fara að slá slöku við í leit að heitu vatni á köldum svæðum. Það er á engan hátt tilgangur þessa frumvarps að fara neitt að skerða það. Við sem búum á svæðum þar sem heitt vatn er í jörðu og höfum náð að nýta okkur það — eins og í minni heimabyggð í Skagafirði, þar sem við erum búin að ná að hitaveituvæða yfir 90% af heimilum, bæði í þéttbýli og dreifbýli — áttum okkur á því hvers lags gæði eru fólgin í slíkri framkvæmd. Við sjáum líka hvernig byggðirnar eru að þéttast þar sem heita vatnið er að koma. Ég tek algjörlega undir með hv. þingmanni í þessu, við megum alls ekki slá slöku við í því að leita að heita vatninu. Það er ekki markmiðið með frumvarpinu, á engan hátt, heldur bara að koma til móts við þá íbúa sem búa við þetta í dag, og leysir þá aðstæður fólks í dag. En vonandi finnst framtíðarlausn á einhverjum stöðum með komu heits vatns, þannig að það sé algjörlega á hreinu.