heilbrigðisþjónusta.
Virðulegur forseti. Þetta er ágætismál. Það þarf ekkert að vera slæmt að setja stjórn yfir Landspítala. Ég held að það leysi reyndar ekki vandann í heilbrigðiskerfinu. Ég held að það sé villuljós sem Sjálfstæðismenn þurfa einhvern veginn að finna út úr. En mér þykir óskaplega miður að þingheimur hafi ekki treyst sér til að hafa rödd notenda þjónustunnar við stjórnarborðið, það ber ekki vott um mikið hugrekki eða nútímann í þessari hugsun að vilja ekki heyra rödd þeirra sem þurfa að nota þjónustuna. Ég held að bæði rekstraraðilar heilbrigðisþjónustu og ekki síst starfsfólkið hefðu gott af því að fá að heyra aðeins annað sjónarhorn og þess vegna verðum við á gulu á þessu máli.