152. löggjafarþing — 88. fundur,  9. júní 2022.

heilbrigðisþjónusta.

433. mál
[19:23]
Horfa

Líneik Anna Sævarsdóttir (F) (um atkvæðagreiðslu):

Virðulegi forseti. Við erum hér að greiða atkvæði um mikilvægt mál sem ég styð. Þar er lagt til að stjórn verði skipuð yfir Landspítala, stjórn sem ætlað er að styrkja stjórnun spítalans sem stærstu heilbrigðisstofnunar landsins og tryggja frekari faglegan rekstur hans. Það er ekki einungis nýmæli að verið sé að skipa stjórn heldur er með frumvarpinu líka lagt til að í fyrsta skipti verði skipað sjö manna notendaráð sem sjúklingum er ætlað að tilnefna fulltrúa í. Þar með hefur sjö manna ráð tækifæri til að eiga samráð við forstjóra og stjórn heilbrigðisstofnana þegar það á við, veita ráðgjöf og aðhald með virku samráði til að tryggja að sjónarmið notenda komi til skoðunar við ákvarðanatöku um skipulag og rekstur heilbrigðisstofnana. Velferðarnefnd beinir því svo til heilbrigðisráðuneytisins að fylgjast með því og útfæra reglugerð þannig að þetta notendaráð skili sem mestu.