152. löggjafarþing — 88. fundur,  9. júní 2022.

heilbrigðisþjónusta.

433. mál
[19:24]
Horfa

heilbrigðisráðherra (Willum Þór Þórsson) (F) (um atkvæðagreiðslu):

Hæstv. forseti. Við erum að samþykkja hér mjög mikilvægar breytingar á lögum um heilbrigðisþjónustu, um stjórn á Landspítala háskólasjúkrahúsi til að styrkja faglega og fjárhagslega starfsemi spítalans. Einna mikilvægastan met ég með þessari breytingu stuðning við starfsfólk spítalans í sínum mikilvægu, daglegu störfum og þjónustu við landsmenn. Þetta er mjög mikilvæg breyting. Ég vil þakka hv. velferðarnefnd mjög góða vinnu við þetta mál. Ég tel að nefndin hafi bætt frumvarpið með umfjöllun sinni, ekki síst, og þeim breytingum sem hér eru lagðar til. Ég vil líka leggja áherslu á það nýmæli að hér er verið að skipa sjö manna notendaráð, hið virka samráð sem mun eiga sér stað við stjórn spítalans. Það er mjög mikilvægt og ég legg áherslu á það.