152. löggjafarþing — 88. fundur,  9. júní 2022.

heilbrigðisþjónusta.

433. mál
[19:25]
Horfa

Þorbjörg Sigríður Gunnlaugsdóttir (V) (um atkvæðagreiðslu):

Virðulegi forseti. Ég tel að hér sé verið að stíga stórt og þýðingarmikið skref, að spítalinn fái stjórn sem fer með faglega og fjárhagslega stjórn spítalans. Þetta er vissulega jákvætt skref. En það er áhugavert að hlusta á allt talið um notendaráð þegar það blasti við að notendur hefðu getað fengið sína rödd í stjórn spítalans þar sem hún heyrist best og þar sem hún hefði mesta þýðingu haft. Notendaráð mun vitaskuld ekki breyta því að þingheimur hefur nú fellt tillögur þess efnis.