152. löggjafarþing — 88. fundur,  9. júní 2022.

stéttarfélög og vinnudeilur.

272. mál
[19:27]
Horfa

Helga Vala Helgadóttir (Sf) (um atkvæðagreiðslu):

Virðulegur forseti. Við erum hér í 3. umr. um þetta mál er varðar Félagsdóm. Málið var kallað inn til hv. velferðarnefndar á milli 2. og 3. umr. vegna ábendinga, m.a. frá mér og fleirum, um að ekki væri verið að fara að ábendingum GRECO, nefndar Evrópuráðsins gegn spillingu o.fl., varðandi skipan í þennan dóm. Enn þá stendur að tilnefningar verða frá Hæstarétti án auglýsingar. Dómarar verða handvaldir inn í Félagsdóm án auglýsingar, þó að ráðherra skipi á endanum. Ég tel þetta vera óheppilegt og ekki til þess fallið að tryggja sjálfstæði og gagnsæi dómstólsins hvers mál fara upp í Hæstarétt á endanum. Ég mun þess vegna sitja hjá í þessari atkvæðagreiðslu.