152. löggjafarþing — 88. fundur,  9. júní 2022.

stéttarfélög og vinnudeilur.

272. mál
[19:29]
Horfa

Þorbjörg Sigríður Gunnlaugsdóttir (V) (um atkvæðagreiðslu):

Virðulegi forseti. Ég mun sitja hjá í þessari atkvæðagreiðslu vegna þess að ég hef ekki sterka sannfæringu fyrir því að meiri hlutanum hafi að fullu tekist að mæta þeirri gagnrýni sem heyrst hefur um þetta mál og að þýðing dóms eins og þessa sé þannig að við getum ekki verið í neinum vafa um hvernig staðið sé að skipun. Þessi gagnrýni frá GRECO hefur komið fram, sem hv. þm. Helga Vala Helgadóttir nefnir, en jafnframt lá fyrir greinargóð umsögn frá Lögmannafélaginu sem nefndin hefur ekki mætt við vinnu sína.