stéttarfélög og vinnudeilur.
Virðulegur forseti. Nefndin kallaði málið inn að nýju eftir 2. umr., fór betur yfir þetta, kallaði eftir skýringum frá ráðuneytinu og telur að þær skýringar feli í sér greinargóðan rökstuðning fyrir því hvað við erum að gera og af hverju. Ég mun þess vegna greiða atkvæði með þessu frumvarpi. Ég hef góða sannfæringu fyrir því að við séum að mæta vinnumarkaðnum. Við verðum að mæta atvinnulífinu þarna. Við erum að mæta þeim röddum sem við þurfum að taka tillit til og þess vegna mun ég greiða atkvæði með þessu.