152. löggjafarþing — 88. fundur,  9. júní 2022.

pakkaferðir og samtengd ferðatilhögun.

587. mál
[19:58]
Horfa

Gísli Rafn Ólafsson (P):

Virðulegi forseti. Hér er um mikilvægt mál að ræða og þó það megi segja að þetta sé með styttri frumvörpum, enda einungis verið að breyta lánstíma í 1. gr. laganna, þá er mikilvægt að verið sé að lengja í þessum lánstíma. Eins og hv. framsögumaður, Stefán Vagn Stefánsson, benti á fengu ferðaskrifstofur upphaflega þessi lán þegar við héldum að Covid yrði búið eftir nokkra mánuði en það tók aðeins lengri tíma en það. Það er ekki bara mikilvægt fyrir ríkið að ferðaþjónustufyrirtækin geti borgað þetta til baka með því að vera ekki með alveg eins háar greiðslur í hvert skipti núna og geta greitt á lengri tíma, því að þetta er líka mikilvægt fyrir neytendur. Ef ferðaskrifstofa getur ekki borgað til baka, t.d. á fyrsta gjalddaga, gæti sú ferðaskrifstofa mögulega farið á hausinn og ef hún færi á hausinn er það að sjálfsögðu slæmt fyrir neytendur. Ég tel þetta því vera mjög mikilvægt frumvarp sem við munum styðja í gegnum það sem eftir er af þingmeðferð þess.