152. löggjafarþing — 88. fundur,  9. júní 2022.

stjórn fiskveiða o.fl.

451. mál
[20:06]
Horfa

Stefán Vagn Stefánsson (F):

Virðulegur forseti. Mig langar bara að koma hér örstutt upp í þessu máli og fagna þessu frumvarpi sem hér er komið er varðar bláuggatúnfisk. Ég held að það sé gríðarlega mikilvægt að við nýtum þá stofna sem hér eru nytjanlegir við Íslandsstrendur og bláuggatúnfiskur er einn af þeim. Þetta er gríðarlega verðmætur fiskur og ef okkur tekst vel til í framtíðinni að nýta hann þá held ég að það séu mikil tækifæri fyrir okkur að nýta þennan stofn með góðum ábata fyrir íslensk fyrirtæki sem vilja reyna sig við þetta verkefni. Við erum búin að reyna þetta. Það var reynt fyrir nokkrum árum síðan að gera út og veiða bláuggatúnfisk frá Grindavík, ef ég man söguna rétt. Það tókst ekki nægilega vel og ástæðan fyrir því var einfaldlega sú að um er að ræða afskaplega sérhæfðar veiðar. Það snýr bæði að skipakosti og ekki síður þeim sjómönnum sem eru um borð. Þetta frumvarp tekur einmitt á því með því að heimila útgerðarmönnum að leigja bæði áhafnir og sérútbúin skip til að afla okkur veiðireynslu á bláuggatúnfisk. Hugmyndafræðin gengur út á það að Íslendingar verði þarna um borð og afli sér þekkingar og reynslu af því hvernig eigi að meðhöndla þessa afurð úr sjó. Ég vildi bara koma hingað upp og lýsa mikilli ánægju minni með frumvarpið og ég þakka nefndinni fyrir mjög góðar umræður um það. Þær voru ansi djúpar á köflum og bara til fyrirmyndar og ánægjulegt að nefndin öll sé á þessu nefndaráliti, enda held ég að menn geri sér grein fyrir því að um er að ræða mikil tækifæri fyrir íslenskan sjávarútveg ef vel gengur. Ég tek bara undir með hv. framsögumanni málsins, við í atvinnuveganefnd munum fylgjast spennt með þessu tilraunaverkefni og vonandi gengur það það vel að við verðum komin hér með íslenskan bláuggatúnfisk á veitingahús um allt land fyrr en varir.