stjórn fiskveiða.
Frú forseti. Þótt ég vilji nú helst ekki vera að teygja á umræðunni, í ljósi þess að hér eru kannski einhverjir góðir hlutir að gerast, þá verð ég samt aðeins að velta því upp og spyrja hv. þingmann um veiðireynsluna sem grundvöll aflahlutdeildar, þann kafla nefndarálitsins. Við höfum verið að tala um nýliðun og kappveiðar og ýmislegt fleira í því samhengi. Ég ætla líka að segja að mér finnst ekki gott að við segjum að um eign sé að ræða, nema eign þjóðarinnar. Mér finnst að við eigum að tala varlega og taka aldrei undir það að um eign sé að ræða. Það er mín skoðun alla vega. En það sem mig langaði til að spyrja hv. þingmann um í þessum kafla er þar sem því er velt upp að það ætti að borga fyrir þetta í upphafi og lögð áhersla á sameiginlega auðlind þjóðarinnar, fjárhagslegt verðmæti, án nokkurs endurgjalds, þ.e. varðandi upprunalegu kvótaúthlutunina eins og ég skil þetta. Mig langar til að velta því upp: Hvernig sér hv. þingmaður fyrir sér að slíkri gjaldtöku verði háttað varðandi upphafsúthlutun? Sannarlega, eins og við þekkjum, eru borguð auðlindagjöld og allt það. Hefur hv. þingmaður eitthvað á takteinunum varðandi það hvernig ætti að haga slíkri gjaldtöku?