152. löggjafarþing — 88. fundur,  9. júní 2022.

stjórn fiskveiða.

349. mál
[20:36]
Horfa

Frsm. minni hluta atvinnuvn. (Gísli Rafn Ólafsson) (P) (andsvar):

Frú forseti. Ég vil þakka hv. þingmanni fyrir andsvarið. Þetta er góð spurning og það eru eflaust til margar leiðir til að gera þessa upphaflegu úthlutun. Mig langar að benda hv. þingmanni á annað lagafrumvarp sem er til afgreiðslu hér, átti reyndar að koma til afgreiðslu fyrr í dag, sem er frumvarp um fjarskipti. Þar er ákveðin auðlind sem heitir tíðni. Það er fjallað sérstaklega um það í frumvarpinu hvernig úthlutun tíðna skuli fara fram. Það hafa verið notaðar mismunandi aðferðir við það. Ég þekki reyndar fjarskiptageirann mun betur en sjávarútvegsgeirann, en þar hefur t.d. verið notuð sú aðferð að það er uppboð á tíðnunum í upphafi og hæstbjóðandi fær tíðnina en samt sem áður er það gert eftir reglum þannig að sami aðilinn fær ekki allar tíðnirnar. Það er t.d. það sem lagt er til í þessu frumvarpi um fjarskipti og við getum alveg horft á þetta og önnur módel, svipuð módel, bæði hérlendis og erlendis, um það hvernig við úthlutum takmörkuðum auðlindum.