152. löggjafarþing — 88. fundur,  9. júní 2022.

stjórn fiskveiða.

349. mál
[20:38]
Horfa

Frsm. meiri hluta atvinnuvn. (Bjarkey Gunnarsdóttir) (Vg) (andsvar):

Frú forseti. Það er kannski þetta sem mig langar að ræða. Við heyrum það varðandi nýliðun að það sé mjög kostnaðarsamt að fara af stað, það sé kostnaðarsamt fyrir ungt fólk eða eldra fólk eða hverjir það nú eru sem eru að fara af stað í útgerð, eru að kaupa sér bát og þurfa jafnvel að leigja sér kvóta ef þeir fá ekki einhverja úthlutun. Maður veltir því fyrir sér hvort það sé ekki a.m.k. umhugsunarefni hversu mikið þeir sem eru að fara í slíka útgerð séu tilbúnir til að borga svo þeir fari bara hreinlega ekki á hausinn. Við þekkjum það að þetta er oft mikið skak, a.m.k. í upphafi, sérstaklega hjá smábátasjómönnum. Ég er ekki hlynnt þessu sem hv. þingmaður var að reyna hér að bera saman, þó að ég viti auðvitað að þetta var bara vísun í það sem hann þekkir, þessu með hæstbjóðanda. Ég er nefnilega ekki sammála því að setja auðlindina okkar á markað þannig að þeir geti boðið í sem eiga aurana. Ég tel að það yrði ávísun á miklu meiri samþjöppun en nokkurn tímann er í greininni í dag. En sannarlega liggur það fyrir og ég hef ekki áhyggjur af því að þingheimur eigi ekki eftir að sjá frá hæstv. matvælaráðherra breytingar á fiskveiðistjórnarkerfinu.

En það er þetta: Hversu mikilvægt telur þingmaðurinn að þeir sem eru að byrja að stunda þetta hafi hreinlega tök á því að gera það? Það er þess vegna sem ég held að það sé þetta uppgjör eftir á, varðandi það að fá að nýta þetta, en ekki kannski að þurfa að borga í upphafi líka.