stjórn fiskveiða.
Frú forseti. Ég þakka hv. þingmanni seinna andsvarið. Ég er algerlega sammála því að það dugar ekki að vera með kerfi þar sem einungis hæstbjóðendur fá slíka úthlutun. Þá langar mig að vitna í fjarskiptafrumvarpið af því að þar er einmitt tekið á þessum málum. Þar segir í 13. gr., með leyfi forseta:
„Fjarskiptatíðnir innan íslensks yfirráðasvæðis eru auðlindir undir stjórn íslenska ríkisins. Úthlutun á tíðnum felur í sér tímabundna heimild til skilyrtra afnota sem hvorki leiðir til beins eignarréttar né varanlegs nýtingar- og ráðstöfunarréttar.“
Í 12. gr. segir síðan, með leyfi forseta:
„Úthlutun tíðniréttinda skal byggjast á viðmiðum sem eru hlutlæg, gagnsæ, samkeppnishvetjandi, án mismununar og hófleg. Slík réttindi skulu að jafnaði vera bundin skilyrði um hlutleysi tækni og þjónustu nema hlutlægar ástæður mæli gegn því.“
Þarna er verið að taka á þessu. Já, þetta er boðið út, þetta er eign þjóðarinnar, en það eru settar reglur sem einmitt taka á hlutum eins og nýliðun, taka á hlutum eins og að allt falli á einn aðila, banna það, o.s.frv. Það er sett regluverk í kringum það. Hér í fjarskiptalögunum er það bara gert í reglugerð og það er kannski einum of auðvelt að breyta því. En þarna er samt mjög athyglisvert að sjá að þarna er verið að tala um auðlind í eigu þjóðarinnar sem við erum að meðhöndla allt öðruvísi en við gerum með hafið í kringum okkur.