152. löggjafarþing — 88. fundur,  9. júní 2022.

stjórn fiskveiða og lög um veiðigjald.

350. mál
[20:43]
Horfa

Frsm. meiri hluta atvinnuvn. (Bjarkey Gunnarsdóttir) (Vg):

Frú forseti. Ég verð að byrja á að segja það hér að 1. gr. laga um fiskveiðistjórnarkerfið hljóðar ekkert ósvipað og sú sem lesin var upp áðan varðandi fjarskiptakerfið, þannig að við höfum auðvitað regluverk utan um það. En ég mæli hér fyrir hönd meiri hluta atvinnuveganefndar fyrir nefndaráliti í máli 350, um öflun sjávargróðurs í atvinnuskyni.

Með þessu frumvarpi eru lagðar til breytingar á lögum um stjórn fiskveiða og lögum um veiðigjald, sem snúa að öflun sjávargróðurs í atvinnuskyni. Lagt er til að felld verði brott ákvæði sem snerta störf Hafrannsóknastofnunar er snúa að rannsóknum á sjávargróðri og að nýting vinnsluaðila á þangi í atvinnuskyni verði leyfisbundin hjá Fiskistofu á grundvelli nýtingaráætlunar og að Fiskistofa muni veita leyfi til nýtingar á þangi fyrir hverja sláttutíð eða til allt að fimm ára. Einnig er lagt til að felld verði á brott ýmis önnur ákvæði sem ekki eiga lengur við. Samráð var haft, gestir komu og umsagnir bárust og finna má yfirlit yfir það í nefndarálitinu.

Í nefndarálitinu kemur fram, og meiri hlutinn leggur áherslu á það, að skýrt verði kveðið á um eftirlit með nýtingaráætlun í reglugerð og að það verði líka haldið til haga þeim forsendum sem leiða til ógildingar áætlunar og leyfis til nýtingar. Það er líka lögð á það áhersla að eftirlitið nái til mats á ágengni nytja sem skulu framar öllu vera í sátt við umhverfið. Þessu til stuðnings telur meiri hlutinn að farsælast væri að áform um aukna þangtekju verði innleidd í áföngum og vísar þar til umsagnar bæði Náttúrufræðistofnunar og Hafrannsóknastofnunar.

Meiri hluti atvinnuveganefndar leggur til breytingar á frumvarpinu. Í fyrsta lagi er lögð til breyting er varðar það að Hafrannsóknastofnun beri að leita umsagnar Náttúrufræðistofnunar um einstök mál er varða nýtingu sjávargróðurs. Er það gert þar sem mikilvægt er að hafrannsóknir, rannsóknir á strandsvæðum, lífríki þeirra, hrygningarstöðvum og seiðauppeldi sem og rannsóknir á fuglalífi fari hönd í hönd þegar slá á þang.

Í öðru lagi er lögð til breyting er varðar álagningu veiðigjalda. Fram kom fyrir nefndinni að meginrökin með því að fella niður veiðigjöld af klóþangi væru þau að þang væri skorið innan netlaga og væri því háð einkaeignarrétti. Meiri hlutinn fellst á þau sjónarmið en bendir á að slíkt gildir ekki um þara og gerir því tillögu um að áfram verði heimilt að taka veiðigjald af þara utan netlaga. Það er líka mikilvægt að halda því til haga að leyfin sem veitt eru eru bundin við þau sláttutæki eða pramma sem eru hagnýtt af leyfishafa og leyfið er óskiptanlegt og óframseljanlegt. Heimild til þangsláttar í fjöru eða í netlögum sjávarjarða fer samkvæmt samkomulagi við ábúanda eða landeiganda þannig að sá sem heldur á leyfi eða fær leyfi hjá Fiskistofu til að stunda slíkar veiðar þarf að vera búinn að semja við landeigendur um það að fá að slá þara. Það er líka þannig að leyfið er háð því að leyfishafi eða nýtingaraðili muni gera nýtingaráætlun um töku þangs og hún þarf að gilda a.m.k. í fimm ár í senn. Þar á að tilgreina hvaða tæki verða hagnýtt við sláttinn, hvaða magn verði slegið og hvar verði slegið og eftir atvikum hvaða svæði verði hvíld eftir slátt til að örva endurvöxt. Ég tel því að það sé ágætlega utan um þetta tekið varðandi lífríki og náttúru. Og eins og segir líka hér þá á að leitast við að gera grein fyrir áhrifum nýtingar á umhverfið með hliðsjón af þeim sláttutækjum og sláttuaðferðum sem verða hagnýtt. Við leggjum þess vegna til að Hafrannsóknastofnun skuli, að höfðu samráði við Náttúrufræðistofnun Íslands, veita umsögn um nýtingaráætlunina. Það var einmitt vegna þess að við vorum ekki sammála því að fela þetta einvörðungu Hafrannsóknastofnun heldur vildum við halda Náttúrufræðistofnun Íslands inni eins og lögð var áhersla á í umsögnum. Það er líka mikilvægt að telji ráðherra að þörf sé á að koma í veg fyrir staðbundna ofnýtingu á einhverjum tilteknum stofni þá er heimilt að ákveða að öflun sjávargróðurs í atvinnuskyni utan fjörusvæða sé auk almenns veiðileyfis háð sérstöku leyfi Fiskistofu, samanber lög um veiðar í fiskveiðilandhelgi Íslands.

Í þriðja lagi leggur meiri hluti atvinnuveganefndar til breytingar er varða gildistöku frumvarpsins. Gildandi ákvæði laga um þangslátt og nýtingu sjávargróðurs falla að óbreyttu brott í lok árs 2023, en með frumvarpinu er lagt til að þessi ákvæði falli brott um leið og fyrirliggjandi frumvarp verður samþykkt sem lög. Við í meiri hlutanum teljum rétt að gefa hagaðilum svigrúm til að bregðast við breytingum á reglum og leggjum því til að lögin taki ekki gildi fyrr en 1. janúar 2023. Við gildistöku laganna um áramót skuli leyfishafar uppfylla skilyrði hinna nýju ákvæða um nýtingaráætlanir og fleira sem kveðið verður á um í reglugerð. Gilda leyfin í allt að fimm ár.

Virðulegi forseti. Að framansögðu virtu leggur meiri hlutinn til að frumvarpið verði samþykkt með þeim breytingum sem ég hef hér gert grein fyrir.

Undir álitið rita, auk þeirrar sem hér stendur, hv. þingmenn Stefán Vagn Stefánsson, Berglind Ósk Guðmundsdóttir, Hanna Katrín Friðriksson, Haraldur Benediktsson, Helga Þórðardóttir, Helgi Héðinsson og Hildur Sverrisdóttir.