152. löggjafarþing — 88. fundur,  9. júní 2022.

aðgerðaáætlun í málefnum hinsegin fólks 2022--2025.

415. mál
[22:12]
Horfa

Hanna Katrín Friðriksson (V):

Frú forseti. Ég vil byrja á því að taka undir ræðu hv. þingmanns sem hér talaði á undan, Lilju Rannveigar Sigurgeirsdóttur þegar hún fagnaði þessari tillögu. Ég geri það líka. Mér finnst gott að sjá hér fjallað um málaflokka sem varða hinsegin eldri borgara og öryrkja af því að það er sannarlega hópur sem hefur, mögulega eðli málsins samkvæmt þegar staðið er í réttindabaráttu, staðið út undan að einhverju leyti. Þetta skiptir gríðarlega miklu máli. Mér finnst líka gott að það sé verið að huga að stöðu hinsegin fólks á landsbyggðinni. Einnig er löngu orðið tímabært að fara í breytingar á reglum um blóðgjafir homma og svo mætti lengi telja.

Hér hefur verið farið yfir þessi mál og ég hélt ræðu í fyrri umr. þar sem ég fagnaði þessu máli og fór yfir þætti þess, en mig langar að nota tækifærið hér og benda á atriði, sem er staða hinsegin barna og unglinga. Mér finnst nefnilega erfitt að standa hérna og fagna árangri okkar í málefnum hinsegin fólks, sem er auðvitað árangur í málefnum heilbrigðs samfélags, meðan hinsegin börn og unglingar eru einfaldlega ekki örugg í skólunum sínum. Börn og unglingar hér á landi eru ekki í lífshættu vegna skotárása í skólum en mörg þeirra eru í lífshættu vegna annars konar árása og sum þeirra lifa ekki af. Þau lifa ekki af í öllum sínum fjölbreytileika og allri þessari fegurð regnbogans og þrátt fyrir allt heimsins hugrekki. Okkur er nefnilega tamt að kenna börnunum okkar að vera hugrökk, það sé jákvætt, það sé mikilvægt, en við kennum þeim ekki að fyrir sum þeirra þá er það bara hættulegt, jafnvel lífshættulegt. Og fyrir hverja? Fyrir hinsegin börn og hinsegin unglinga er hættulegt umhverfi í skólunum í dag, því miður. Hinsegin börn og unglingar standa frammi fyrir því að vera rænd lífsgleðinni og í allra verstu tilfellum sjálfu lífinu. Þetta gerist vegna þess að þessi börn, þessir unglingar, sýna kjark til að vera þau sjálf og vegna þess að við erum að bregðast þeim. Skólakerfið bregst með því að bregðast ekki við á réttan hátt og við bregðumst sem foreldrar, sem uppalendur og sem fólk sem á að leiða för í samfélaginu. Það er ekki hægt að nota neitt annað orð yfir stöðu mála. Við erum að bregðast þessum börnum og unglingum.

Ég hef staðið hér áður og rætt um líðan hinsegin barna og unglinga í skólum. Tilefnið þá var heldur ekki gleðilegt. Það var tengt niðurstöðum kannana sem segja okkur að þriðjungur hinsegin ungmenna upplifir óöryggi í skólanum sínum. Þetta er auðvitað óásættanlegt gagnvart þessum ungmennum og gagnvart samfélaginu okkar og við verðum að gera betur. Hinsegin unglingar eru nefnilega eins og hverjir aðrir unglingar, það er mismunandi hvað þau vilja fá út úr námi sínu, hvað þau vilja starfa við að námi loknu. Þetta er jafn ólíkt hjá þessum hópi unglinga og það er hjá öðrum ungmennum og þau eiga rétt á sömu tækifærum til náms, sömu tækifærum til að upplifa öryggi í skólanum sínum, sömu tækifærum til að fá að blómstra, til að velja leiðir, gera mistök, upplifa þessa hluti sem flestir unglingar og börn upplifa í öruggu samfélagi. Skert tækifæri, óöryggi og hætta eiga ekki að vera fylgifiskar þess að koma út úr skápnum sem börn og unglingar. Einelti, andlegt og líkamlegt ofbeldi, bein lífshætta á sannarlega ekki að vera fylgifiskur þess. Fyrir stuttu síðan lýsti hópur hinsegin unglinga í Kastljósi á RÚV því grófa áreiti sem þau verða fyrir, þar sem þau eru elt af stórum hópum, þau eru grýtt og í verstu tilfellunum hvött til að skaða sig eða svipta sig lífi. Það kom fram í þessum Kastljósþætti af hálfu fólks sem vinnur t.d. með Samtökunum ‘78 eða Hinsegin félagsmiðstöð hversu virkilega alvarlegt þetta ofbeldi er. Ég held að ekkert okkar geti gert sér í hugarlund hvernig það er að vera unglingur með öllu því áreiti og áskorunum sem því fylgir þó að þú fallir inn í hópinn, en hvað þá að vera unglingur sem fær ekki að ganga óáreittur um ganga skólans, um nágrenni heimilis síns, niðri í bæ eða annars staðar þar sem unglingar koma saman án þess að verða fyrir svívirðingum, andlegu ofbeldi, jafnvel líkamlegu ofbeldi hvar sem er, hvenær sem er. Þetta allt til viðbótar við það áreiti sem viðgengst á netinu. Það er hvergi skjól. Og þó, það er eitt skjól. Það er Hinsegin félagsmiðstöðin sem er tilraunaverkefni hjá Reykjavíkurborg og hefur verið frá árinu 2016 og er fjármögnuð með tímabundnum samningum. Þetta segja bæði unglingarnir og þeir sem starfa að þessari miðstöð og Samtökunum ‘78 að hafi einfaldlega reynst þessum börnum og unglingum lífsnauðsynlegt. Þarna er skjólið. Þarna, ekki í félagsmiðstöðvum í skólum þessara ungmenna, ekki á öðrum samkomustöðum ungmenna, jafnvel ekki þegar þau ganga í hópi vina, hinsegin vina, niðri í bæ eða hvar sem ungmenni koma saman. Þetta er sturlað. Það er virkilega jákvætt að Hinsegin félagsmiðstöðin skuli vera þeim þetta skjól og það er meira en jákvætt, það er, eins og kemur fram í máli þessa fólks sem best þekkir til, lífsnauðsynlegt. En það er líka mjög varhugavert ef þetta er eini staðurinn sem þessi ungmenni geta leitað til til að vera örugg, til að vera þau sjálf, án þess að vera í hættu vegna þess að það eykur enn frekar á einangrunina. Það er verið að jaðarsetja þessi ungmenni enn frekar. Hinsegin félagsmiðstöð, eins nauðsynleg og hún er og verður vonandi með tímanum annað og meira en tilraunaverkefni, má því ekki vera eini griðastaðurinn. Við viljum ekki þannig samfélag.

Ég gæti farið alla leið og þulið hér upp dæmi þar sem þetta áreiti og ofbeldi hefur haft skelfilegar afleiðingar. Ég ætla ekki að gera það. Ég held að við vitum öll hver staðan er. Þetta hefur því miður reynst fréttaefni. Það er ekki það slæma að þetta hafi verið fréttaefni en því miður hefur það verið þannig að það hafa verið sagðar fréttir af skelfilegum afleiðingum. Við verðum að gera betur.

Við getum gert það með því að búa til rými fyrir umræður um margbreytileikann og við getum gert það með því að reyna að tryggja að námsefni endurspegli nútímann. Að gefnu tilefni þá er mjög mikilvægt að það námsefni sé jafnt í grunnskólum landsins sem og í kennaranáminu. Það er mjög mikilvægt að við menntum kennarana sem eiga að sinna fræðslu áfram í þessum málum. Svo er líka mikilvægt að halda því til haga að það er ekki hægt að varpa allri ábyrgð á skólakerfið. Við foreldrar berum ábyrgð hér, hvernig við tölum, hvernig við hegðum okkur, hvernig við forgangsröðum í lífinu og hvernig við forgangsröðum því sem við viljum kenna börnunum okkar. Við verðum að viðurkenna að við erum öll að mynda samfélagið okkar hérna og við þurfum að horfast í augu við það að þetta samfélag sem við erum að mynda er ekki gott og öruggt samfélag fyrir þennan hóp barna og unglinga. Það er það ekki.

Þetta var það sem ég vildi sagt hafa, nota tækifærið þegar við erum að fagna þeim árangri sem við erum að ná. Við erum að skilja eftir þennan viðkvæma hóp. Ég fagna aðgerðaáætlun í málefnum hinsegin fólks. Ég vil bara að við höfum í huga að þessi hópur þarf aðstoð. Þegar við þingmenn tölum um mannréttindi umfram allt, þegar við tölum um jöfn tækifæri, þegar við tölum um frelsi einstaklinga, félagslegan jöfnuð, land tækifæranna, þá er bara ágætt að horfa í spegil og spyrja hvort við séum að gleyma þessum kjarkmiklu börnum og ungmennum sem tilheyra hinsegin samfélaginu og eru fyrirmyndir fyrir svo ótal marga, ekki bara á þeirra aldri heldur fyrir marga sem eldri eru. Við verðum að gera betur í málefnum þessa hóps.