varamenn taka þingsæti.
Fimmtudaginn 9. júní barst bréf frá Hönnu Katrínu Friðriksson, 8. þm. Reykv. s., um að hún verði fjarverandi á næstunni. Þann 11. júní tók því sæti á Alþingi 1. varamaður á lista Viðreisnar í kjördæminu, Daði Már Kristófersson.
Einnig hefur borist bréf frá Loga Einarssyni, 1. þm. Norðaust., um að hann verði fjarverandi á næstunni og þá hefur borist bréf frá formanni þingflokks Sjálfstæðisflokksins um að Þórdís Kolbrún R. Gylfadóttir, 2. þm. Norðvest., geti ekki sinnt þingstörfum á næstunni. Í dag tekur því sæti á Alþingi 1. varamaður á lista Samfylkingarinnar í Norðausturkjördæmi, Hilda Jana Gísladóttir, og 2. varamaður á lista Sjálfstæðisflokksins í Norðvesturkjördæmi, Sigríður Elín Sigurðardóttir, en 1. varamaður á lista hefur þegar tekið sæti.
Daði Már Kristófersson og Hilda Jana Gísladóttir hafa áður tekið sæti á Alþingi og eru boðin velkomin til starfa að nýju.