afgreiðsla rammaáætlunar og ræðutími.
Herra forseti. Ég vil beina fyrirspurn til hæstv. forsætisráðherra. Nú hefur nefndarálit meiri hluta umhverfis- og samgöngunefndar um rammaáætlun, sem við höfum varið miklum tíma í hér í þinginu að koma í gegn, allt frá árinu 2016, verið lagt fram með töluverðum breytingum sem komu dálítið á óvart. Nefndarálitinu er dreift útprentuðu hér handan við vegginn en því var dreift rafrænt á laugardaginn, 11. júní kl. 18:15. Á fimmtudagskvöldið skrifuðu fulltrúar stjórnarflokkanna undir þinglokasamkomulag við fjóra af fimm stjórnarandstöðuflokkum sem neglir niður með hvaða hætti umræðunni verður háttað í þeim málum sem eru hér til afgreiðslu á lokadögum þingsins og setur, svo vægt sé til orða tekið, verulegar takmarkanir á það með hvaða hætti þingmenn geta tjáð sig. Þetta snýst fyrir þá sem ekki þekkja til um fjölda mínútna sem má ræða í hverju þingmáli fyrir sig. Þetta samkomulag var undirritað á fimmtudagskvöldi. Tveimur sólarhringum seinna er birt þetta nefndarálit varðandi rammann með verulegum breytingum miðað við það sem fyrir lá áður, svo miklum raunar að ekki allir stjórnarþingmenn treysta sér til að styðja málið. En það sem ég vil spyrja hæstv. forsætisráðherra út í er hvort ráðherrann telji það forsvaranlegt að ganga frá þinglokasamkomulagi við stjórnarandstöðuflokka sem takmarkar svo mjög ræðutíma þeirra í flóknu máli eins og þessu og síðan komi fram jafn afdrifaríkar og yfirgripsmiklar breytingar og mælt er fyrir um í nefndaráliti meiri hluta með breytingartillögu við rammaáætlun.