afgreiðsla rammaáætlunar og ræðutími.
Herra forseti. Ég þakka hv. þingmanni fyrirspurnina. Eins og ég kann þessa sögu þá voru það þingflokksformenn sjö flokka sem skrifuðu undir samkomulagið, en einmitt ekki sá hv. þingmaður sem hér spyr. Mér skilst að Miðflokkurinn sé ekki aðili að þessu samkomulagi. Tel ég forsvaranlegt að skrifa undir slíkt samkomulag? Algerlega. En ég vænti þess að sjálfsögðu að það hafi verið rætt á fundi þingflokksformanna ef einhverjar athugasemdir eru við það samkomulag vegna þessa nefndarálits eða nokkurs annars þess sem kann að koma upp í þingstörfunum. Ég þekki ekki umræðurnar í hv. umhverfis- og samgöngunefnd en væntanlega hefur málið verið töluvert mikið rætt þar þótt endanlegt nefndarálit hafi ekki legið fyrir fyrr en á laugardag. Ég sé þannig ekkert því til fyrirstöðu að gera slíkt þinglokasamkomulag en vænti þess að séu einhverjar athugasemdir við það hafi það verið rætt á fundi, sem ég var ekki á, núna kl. 11.