afgreiðsla rammaáætlunar og ræðutími.
Virðulegur forseti. Ég þakka hæstv. forsætisráðherra svarið. Mér þykir ráðherrann heldur stefna í þá átt að ætla að hafa hér allt í upplausn það sem eftir lifir kjörtímabils hvað varðar fyrirkomulag þingloka. Hæstv. ráðherra verður auðvitað að stýra því með sínum hætti sjálfur. Mér kemur mjög á óvart að hæstv. ráðherra, sem er nú verkstjóri þessarar ríkisstjórnar, telji að þær grundvallarbreytingar sem gerðar eru á rammanum, með áliti meiri hluta nefndarmanna, séu eitthvað sem þingflokksformenn hefðu átt að geta rætt áður en það nefndarálit var rammað inn. Ég veit ekki hvaða tímavél forsætisráðherra býr yfir en það var ekki nokkur möguleiki fyrir þingflokksformenn hinna sjö flokka sem gerðu þetta samkomulag — hárrétt að Miðflokkurinn stendur ekki að því samkomulagi.
Ég vil bara ítreka þann hluta spurningar minnar sem snýr að því að ráðherra líti þannig á (Forseti hringir.) að allt sem þingflokksformennirnir sjö skrifuðu undir, hvað takmarkanir á ræðutíma varðar, skuli standa þrátt fyrir þessar breytingar.