152. löggjafarþing — 89. fundur,  13. júní 2022.

afgreiðsla rammaáætlunar og ræðutími.

[11:40]
Horfa

forsætisráðherra (Katrín Jakobsdóttir) (Vg):

Herra forseti. Mér þykir það nú koma úr hörðustu átt og jafnvel vera nokkuð kúnstugt þegar þingmaður Miðflokksins talar um að sú sem hér stendur sé sú sem hleypi þinglokum í uppnám. Ef við skoðum þinglok undanfarinna ára þá held ég að það sé nú fremur Miðflokkurinn sem hafi verið í því hlutverki að hleypa þeim í uppnám. Nú er verið að afgreiða mál úr nefndum og það liggur algerlega fyrir að þau voru ekki öll komin úr nefnd þegar skrifað var undir umrætt samkomulag. Þannig er það oft og iðulega og eðlilega verða breytingar á málum í nefndum þegar gengið er frá endanlegum nefndarálitum. Ég tel að það sé fullkomlega eðlilegt. Séu hins vegar einhverjar slíkar athugasemdir við það samkomulag, sem Miðflokkurinn er ekki aðili að og kemur engum á óvart miðað við þá sögu sem ég rakti hér í upphafi, þá að sjálfsögðu ræða þingflokksformenn það sín á milli og við forseta þingsins ef ástæða er talin til að auka við ræðutíma að einhverju leyti.