afgreiðsla rammaáætlunar úr nefnd.
Hæstv. forseti. Ég fagna því að það hilli undir afgreiðslu 3. áfanga rammaáætlunar á Alþingi vonum seinna en það er ekki sama hvernig það er gert. Sú var tíðin að Vinstrihreyfingin – grænt framboð gaf sig út fyrir að vera flaggskip náttúruverndar hér á landi og tók það hlutverk alvarlega oftast nær. Það urðu hér nokkur tíðindi í liðinni viku þegar VG ákvað að setja nafn sitt við breytingartillögu meiri hluta umhverfis- og samgöngunefndar við afgreiðslu 3. áfanga rammans úr nefnd, reyndar á þann veg að annar tveggja fulltrúa VG í nefndinni, Bjarni Jónsson, þingmaður Norðvesturkjördæmis, studdi þá tillögu ekki. Í umræðum um rammann á Alþingi árið 2017 sagði hv. þm. Katrín Jakobsdóttir með leyfi forseta:
„Að sjálfsögðu er margt gott í þeirri áætlun sem nú er lögð óbreytt fram frá fyrra þingi, þá sérstaklega hvað varðar verndarflokkinn, og kemur kannski ekki á óvart að ég fagni því sérstaklega. Ég horfi þá til að mynda til Skjálfandafljóts, Skaftár og fleiri þátta, og Norðlingaölduveitu sem hefur talsvert verið til umræðu í þessum sal á undanförnum árum. Og svo auðvitað jökulvötnin í Skagafirði.“
Einnig er rétt að rifja upp að hæstv. forsætisráðherra var á þingsályktunartillögu VG um friðlýsingu austari og vestari Jökulsár í Skagafirði árið 2008.
Forseti. Eftir að hafa fylgst með pólitík Vinstri grænna í meira en tvo áratugi á ég bágt með að skilja þessi sinnaskipti. Því verð ég að spyrja Katrínu Jakobsdóttur, formann VG og hæstv. forsætisráðherra, hvað hafi breyst. Með hvaða rökum styðja Vinstri græn færslu Kjalölduveitu og virkjunarkostanna í Héraðsvötnum úr verndarflokki í biðflokk?