geðheilbrigðismál.
Virðulegi forseti. Geðrænir sjúkdómar hafa til skamms tíma verið í senn feimnismál og hálfgerð afgangsstærð í íslensku heilbrigðiskerfi. Sú staðreynd speglast í nýlegum áfellisdóm í skýrslu Ríkisendurskoðunar er leiddi til yfirgripsmikillar umræðu hér í þinginu um þessi mál og er enn ólokið. Nokkrir hugrakkir einstaklingar hafa á undanförnum misserum stigið fram og rætt opinskátt um sjúkdóma sína, þar með talið kvíða og þunglyndi. Þetta góða fólk hefur þannig átt sinn þátt í því að eyða fordómum tengdum þessum málaflokki. Ýmsir hafa velt því fyrir sér hvort jafnvel mætti líta á þunglyndi sem eins konar þjóðarsjúkdóm Íslendinga. Þannig kunni þunglyndi að vera stórum hluta þjóðarinnar í blóð borið og mögulega orsök stórs hluta þeirra fjölmörgu og sorglegu sjálfsvíga sem hér eiga sér stað á ári hverju.
Samspil geðsjúkdóma og lyfja er flókið fyrirbæri. Algengt þunglyndislyf er liþíum, eitt frumefnanna, sem bent hefur verið á að sé jafnframt lykilefni í rafhlöðum farsímanna okkar og rafbílanna. Líkt og í tilviki rafhlaðnanna virðist virkni liþíums smám saman fjara út eftir því sem það er notað lengur. Leiðni liþíums í þessu samhengi kunni jafnvel að gefa vissar vísbendingar um hina rafrænu eiginleika mannsins. Á svipuðum nótum eru vísbendingar um að tiltekið mataræði, inntaka ákveðinna sveppategunda og þá ekki síst líkamleg áreynsla gagnist mörgum þunglyndissjúklingum en allar slíkar tilgátur kalla á frekari vísindarannsóknir.
Um samfélagsleg áhrif þessa alvarlega sjúkdóms þarf ekki að fjölyrða en í ljósi þess hversu grafalvarlegt þetta vandamál er hérlendis vil ég spyrja hæstv. heilbrigðisráðherra hvort ekki sé tímabært að hann hleypi af stað sérstöku rannsóknarverkefni. Þá er átt við skipun nefndar er njóti atfylgis sérfræðinga, innlendra og erlendra, til að freista þess að komast að hinum raunverulegu orsökum og rótum þessa skæða þjóðarsjúkdóms í eitt skipti fyrir öll. Hér er sannarlega brýnt og löngu tímabært verkefni að vinna í þágu bættrar lýðheilsu (Forseti hringir.) og Ísland kann að vera einkar vel til frumkvæðis fallið í þessu máli. (Forseti hringir.) Ég skora því á okkur góða hæstv. heilbrigðisráðherra að bregðast við þessari áskorun með opnum huga og vænti jákvæðra viðbragða hans.