geðheilbrigðismál.
Hæstv. forseti. Ég vil þakka hv. þm. Jakobi Frímanni Magnússyni fyrir hans fyrirspurn. Þetta eru spurningar sem snúa að stóru myndinni í þessu, hversu fjölþætt þetta er. Kannski má fullyrða að við höfum verið sein að bregðast við og taka af alvöru á þessum málum sem eru svo mikilvægur partur af lýðheilsu, þ.e. geðheilbrigðisþátturinn. Ég get svarað spurningunni sem kom í lokin, um það að greina orsakirnar, jákvætt. Við þurfum að greina orsakir vandans í öllu tilliti en sérstaklega þarna. Það er líka rétt, sem hv. þingmaður dregur fram, að fjölmargir einstaklingar hafa rætt opinskátt um þennan vanda. Það var ekki þannig. Það er mjög jákvæð þróun og ég held að það sé vísbending um að við séum farin að hlusta, að við séum farin að viðurkenna þennan þátt í lýðheilsunni, geðrækt, allan aldursskalann, allt frá þeim yngstu. Þess vegna fannst mér skýrsla ríkisendurskoðanda, sem fékk prýðisumræðu hér í þinginu, mjög góð. Hún dregur fram það sem við getum betrumbætt, m.a. þennan þátt. Þar kemur fram að við höfum ekki verið dugleg við að skrá og safna saman gögnum og upplýsingum, það skortir hjá okkur. Ég vil því bara svara þessu jákvætt og bregðast við. Ég veit að hæstv. mennta- og barnamálaráðherra er mér sammála um að við þurfum að greina orsakir vandans. Ég skal síðan reyna að koma betur að öðrum þáttum í seinni umferð.